Hafa áhyggjur af skorti á ráðdeild og aðhaldssemi í fjárlögum Þorbjörn Þórðarson skrifar 13. september 2015 13:37 Hrafn Steinarsson hjá greiningu Arion banka 365/ÞÞ
Sérfræðingur í greiningu Arion banka segir að fjárlagafrumvarp næsta árs endurspegli ekki mikla ráðdeild í ríkisfjármálum. Þá telur hann að skattalækkanir geti komið á röngum tíma og ýtt undir þenslu í hagkerfinu. Vaxtakostnaður hefur verið einn stærsti útgjaldaliður ríkisins á síðustu árum en ríkissjóður hefur verið að borga um 80-85 milljarða króna í vexti á ári á síðustu árum. Færð hafa verið fyrir því rök að lækkun vaxtakostnaðar ríkisins sé í raun stærsta velferðarmálið því þessir fjármunir sem fara í vexti myndu nýtast betur við innviðuppbyggingu og í velferðarþjónustu. Þegar Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti fjárlagafrumvarpið í Hörpu birti hann glæru sem sýnir áætlun um endurgreiðsluferil og lækkun vaxtakostnaðar ríkisins. Samkvæmt þessari áætlun mun vaxtakostnaður fara úr 76,8 milljörðum króna á þessu ári á verðlagi ársins niður í 62,9 milljarða króna á árinu 2019. Þegar Bjarni sýndi þessa glæru á fundinum sagði hann eftirfarandi: „Ég hygg að það sé vandfundið það land í Evrópu sem getur birt jafn mikla lækkun á heildarskuldum sínum eins og dregst upp á þessari mynd sem við erum að horfa á hér. Ég hygg að það land sé ekki til.“Útgjöld að aukast um 36 milljarða milli ára Ríkissjóður mun skila 15,3 milljarða króna afgangi samkvæmt fjárlagafrumvarpinu en útgjöld eru samt að aukast um 36 milljarða króna milli ára. Stór hluti útgjaldaaukningarinnar er að vísu vegna mikilla launahækkana í nýgerðum kjarasamningum ríkisstarfsmanna, eins og lækna, hjúkrunarfræðinga og kennara. Ný útgjaldaukning án karasamninga er 12,4 milljarðar króna. Hrafn Steinarsson sérfræðingur í greiningardeild Arion banka segir ekki sé mikil ráðdeild í fjárlagafrumvarpinu og það hefði verið skynsamlegra að skila meiri afgangi á ríkissjóði. Þá hefur hann áhyggjur af áhrifum skattalækkana á verðbólgu. „Við hefðum viljað sjá meiri aðhaldsaðgerðum teflt fram. Þetta eru minni aðhaldsaðgerðir en við höfum séð undanfarin 6-7 ár. Þegar þetta tvennt fer saman, útgjaldaaukningin og lækkun skatta sem mun auka ráðstöfunartekjur almennings, maður hefur áhyggjur af því að þetta muni ýta undir þenslu í hagkerfinu,“ segir Hrafn. Í fréttum Stöðvar 2 á föstudag sagði Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins efnislega það sama um skattalækkanir, að þær gætu orðið þensluhvetjandi. Þorsteinn sagði krafist væri mikill prósentubreytinga hjá gerðardómi og í opionberum samningum. Ef sátt um launastefnu næðist ekki og laun væru að hækka um tugi prósenta á næstu misserum væru engar forsendur fyrir skattalækkunum sem á að ýta úr vör á næsta ári og á árinu 2017. Þorsteinn sagði að þær gætu í raun virkað eins og olía á eld. Sjá má viðtalið við Þorstein hér fyrir neðan.
Mest lesið Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Innlent Hnífstunga á Austurvelli Innlent Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Erlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Innlent Fleiri fréttir Gosmóðan liggur þétt yfir höfuðborgarsvæðinu og viðkvæmir hvattir til að vara sig 135 þúsund kjúklingar á Ásmundarstöðum í Ásahreppi „Langstærstu vandamálin eru þessir stærri og skipulögðu þjófnaðir“ „Umsókn Íslands að Evrópusambandinu hefur aldrei verið formlega dregin til baka“ Hornfirskur miði vann rúmar níu milljónir „Nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB með sem mestum blekkingum“ Leikrit ríkisstjórnarinnar og hnífamaður flúði í strætó Hnífstunga á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Sjá meira