Því geta hvalveiðimenn veitt sem samsvarar nærri 17 hrefnum fyrir andvirði hreindýrstarfs og tæplega þrjár langreyðar þarf að veiða til að ná upp í veiðileyfið. Dúi Landmark, formaður Skotvís, segir þennan samanburð sýna að heildrænnar stefnu í nýtingu og veiðistýringu nytjastofna á Íslandi sé þörf. „Í þessu tilfelli hallar verulega á skotveiðimenn í þessum samanburði og það er ekkert nýtt. Það er eitthvað sem við höfum fengið að kynnast á síðustu árum. Stjórnvöld virðast vilja líta svo á að hægt sé að leggja hærri og hærri gjöld á veiðimenn því þeir eru í þessu sem áhugamáli,“ segir Dúi. „Það sem þessi verðlagning sýnir er að það er gríðarlegt misræmi yfirhöfuð hjá stjórnvöldum þegar kemur að veiðistýringu. Það er engin heildræn stefna stjórnvalda til í nýtingu nytjastofna og við hjá Skotvís höfum kallað eftir slíkri stefnu.“

Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, telur hins vegar ekki hægt að bera þessar veiðar saman. „Það eru til verðmæti fyrir flestallar tegundir sem við nýtum úr sjó við löndun í gegnum fiskmarkaði. Þar verður verðmætið til. Hvalur hefur ekki verið á fiskmörkuðum heldur fer til vinnslu hjá þeim aðilum sem eru að veiða og því erfitt að gera sér grein fyrir verðmætunum. Erfitt er að bera þetta saman við hreindýraveiðar. Eins má segja að veiðileyfi á laxi séu dýr,“ segir Jón.