Hefur safnað sér yfir 66 postulínsdýrastyttum Gunnhildur Jónsdóttir skrifar 25. júlí 2015 09:30 Þórey á þrjár bækur sem fjalla um dýrastyttur frá merkjunum sem hún kaupir frá. Vísir/Stefán
Þórey Svana Þórisdóttir hefur verið að safna postulínsstyttum af dýrum í yfir 15 ár. Safnið telur í kringum 66 styttur en það eru ekki hvaða dýrastyttur sem er sem fá að vera með í safninu. „Þetta eru þrjú dönsk merki sem ég er að safna frá. Það eru Royal Copenhagen, Bing & Grøndal og Dahl Jensen. Ég kaupi þær ýmist sjálf eða set þær á óskalistann fyrir jólin eða afmælið. Uppáhaldsstytturnar mínar eru frá Dahl Jensen en þær eru svo lifandi, eins og þær séu á hreyfingu.“ Bæði Bing & Grøndal og Dahl Jensen hafa nú verið sameinuð Royal Copenhagen og framleiðslan verið færð til Taílands. „Allar þær styttur sem ég á eru framleiddar í Danmörku. Þær eru allar gamlar og ég fæ þær oftast í antík-búðum og skranmörkuðum. Þeim hefur farið fækkandi hér á landi en ég er nýkomin frá Danmörku og ég keypti mér níu styttur í þeirri ferð.“Konunglegt Postulín Stytturnar hennar Þóreyjar eru með sinn eigin skáp. fréttablaðið/stefánÞrátt fyrir að Þórey eigi mikinn fjölda af styttum þá er safnið ekki nærri því fullkomið. „Það eru enn þá styttur sem mig langar í sem ég hef ekki enn þá tímt að kaupa mér. Mig langar mjög mikið í uglu í raunstærð og íslenskan fálka. Ég myndi segja að helmingur safnsins sé fuglar en ég er að reyna að vinna í því að lækka hlutfallið og hafa meiri fjölbreytni. Það er bara oft þannig að fuglastytturnar eru langfallegastar. Þegar ég vel mér styttu þá er mikilvægt að hún tali til mín og sé lifandi, það þarf að vera tenging. Ég hef ekki farið út í það að safna styttum af mannfólki þar sem þær horfa oftast niður og mér finnst það mjög leiðinlegt og líflaust. Dahl Jensen gerði þó flottar mannastyttur en þær eru allt of dýrar. Sú dýrasta sem ég hef keypt mér kostaði 60.000 krónur en sú ódýrasta var í kringum 3.000 krónurnar.“ Þórey er með sér glerskáp þar sem hún geymir stytturnar en hann er orðinn alltof lítill fyrir sívaxandi safnið. „Ég var alltaf með þær úti á hillu en nú þegar þær eru komnar inn í skápinn þá þarf ég ekki að þurrka jafn mikið af þeim. Ég þríf þær alltaf vel þegar ég er nýbúin að kaupa þær og svo þarf ég voða lítið að hugsa um þær.“
Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Frægustu mágar landsins Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Sjá meira