Grýtti hvolp og sparkaði í hann að ástæðulausu Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 12. apríl 2015 19:33 Monsi er slasaður og vankaður eftir árásina sem átti sér stað á Álftanesi. Mynd/Anna Björg „
Það er eitthvað mikið að honum, hann svarar engu kalli eða neitt. Þetta er hress hundur vanalega en liggur nú bara hreyfingarlaus,“ segir Anna Björg Kristinsdóttir sem lenti í því um hádegisbilið í dag að maður sem hún segist telja á fertugsaldri kastaði í hund hennar grjóti og sparkaði í dýrið. Hundurinn er rúmlega eins árs gamall labrador sem gengur undir nafninu Monsi.Maðurinn froðufelldi „Ég fór út með hundinn og var búinn að vera úti með hann í rúmlega klukkutíma. Hann er rétt yfir eins árs gamall, bara hvolpur ennþá og við erum að leika,“ rifjar Anna upp. Hún var á Álftanesinu á svæði þar sem hún segist vön að leyfa hundinum að leika án þess að vera í taumi og að það sé alvanalegt að hann hitti þar aðra hunda. „Svo kemur þetta fólk gangandi að, maður og kona með border collie í bandi og hann, Monsi, hljóp að þessu fólki. Og maðurinn bara froðufelldi. Um leið og hann hljóp að hinum hundinum þá sparkar maðurinn í hann,“ útskýrir Anna sem skiljanlega segir sér hafa brugðið töluvert.Grýtti hvolpinn „Ég bara fraus. Það var svo mikil heift í manninum.“ Maðurinn lét ekki nægja að sparka í hvolpinn heldur æpti hann: „Ég ætla að rota þetta helvítis kvikindi.“ Anna Björg reyndi að malda í móinn og bað manninn að slaka á en „þá tók hann stein og grýtti í hann. Hundurinn minn fór þá að gelta, hann er náttúrulega að verja sig, þá tekur maðurinn annan stein og grýtti í hann. Hann var bara í svona metersfjarlægð og grjótið lenti á auganu á honum.“ Monsi liggur í jörðinni og vælir og Anna færir hann inn í bílinn sinn. „Ég rankaði ekki við mér fyrr en ég er að koma hundinum fyrir inn í bílnum og sé hvernig það blæðir úr auganu á honum. Þá fatta ég að reyna að ná mynd af fólkinu og hleyp á eftir þeim en þau afþakka að vera á mynd.“ Anna segist hafa keyrt um svæðið eftir að fólkið hvarf til þess að reyna að hafa upp á því en hafi ekki borið árangur sem erfiði.Anna Björg er mikill dýravinur og fordæmir hegðun mannsins sem henti grjóti í hundinn hennar.Mynd/AnnaStórslasaður hundur Monsi er mikið slasaður eftir atvikið og ólíkur sjálfum sér. Þegar Vísir náði tali af Önnu var hún á leið með hann á dýraspítala. „Ég hringdi í dag en þá var mér sagt að sjá til þangað til á morgun, athuga hvort að bólgan myndi minnka. En ég er að fara með hann upp á spítala núna, hann var að líða út af. Augun renna til í honum, hann hreyfir sig ekki heldur liggur bara og vælir litla greyið.“ Anna Björg fordæmir hegðun parsins, hún segist ekki skilja viðbrögð þeirra og að hennar mati ættu hundaeigendur að þekkja muninn á árásargjörnum hundi og þeim sem nálgast annan til að leika. Hún viðurkennir að hundurinn hafi ekki verið í ól en bendir á að á svæðinu sem um ræðir sé það alvanalegt þar sem það er afgirt. „Ég hef aldrei hitt fólk með hund í ól þarna áður. Ég benti þeim á að ef að þau vilja ekki að hundurinn þeirra hitti aðra hunda að þá verði þau bara að hafa hann í afgirtum garði heima hjá sér.“Sögunni deildi Anna inni á síðunni Hundasamfélagið á Facebook og viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. Notendur hópsins segjast sjaldan hafa heyrt jafn hranalega framkomu í garð dýrs og benda á að sjúkrakostnaður í kjölfar atviksins geti numið talsverðum fjárhæðum. Fjölmargir benda Önnu á að kæra hreinlega þessa hegðun til lögreglu.Fólkið vildi ekki leyfa Önnu að taka mynd af sér.Mynd/AnnaAnna lýsir parinu sem réðst á hundinn þannig á Hundasamfélaginu að maðurinn sé hávaxinn með dökkt skegg og speglagleraugu en konan er lítil og þétt með gleraugu í ljósblárri úlpu.
Mest lesið Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Erlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Innlent Björgvin Halldórsson látinn Innlent Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Fleiri fréttir Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Sjá meira