Ofbeldi í nánum samböndum hefur áhrif á heilsu þolenda Viktoría Hermannsdóttir skrifar 9. janúar 2015 07:15 Átján prósent kvennanna sem tóku þátt í rannsókninni höfðu orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi.
Ofbeldi Afleiðingar ofbeldis sem konur verða fyrir í nánum samböndum geta verið miklar fyrir bæði andlega og líkamlega heilsu kvennanna. Þetta segir Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Hún, Berglind Guðmundsdóttir og Brynja Örlygsdóttir kynntu niðurstöðu rannsóknar sinnar á ofbeldi í nánum samböndum á ráðstefnu heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands sem fram fór á mánudag og þriðjudag í þessari viku. „Við vildum rannsaka með hvaða hætti hjúkrunarfræðingar gætu teygt sig í átt til kvenna sem eru þolendur ofbeldis í yfirstandandi sambúð og hvaða áhrif ofbeldið hefur á þær,“ segir Erla Kolbrún sem hefur gert fjölmargar rannsóknir á ofbeldi gegn konum. Alls tóku 306 konur þátt í rannsókninni, annars vegar konur sem höfðu leitað eftir heilbrigðisþjónustu á slysa- og bráðamóttökudeild Landspítalans og hins vegar konur sem voru beðnar um að svara spurningalistum á Háskólatorgi. Af þessum 306 konum voru 55 þolendur ofbeldis í yfirstandandi sambandi.„Þannig að 18% kvennanna sem tóku þátt í rannsókninni voru þolendur ofbeldis í yfirstandandi eða núverandi sambúð,“ segir Erla Kolbrún. Sérstaklega var rannsakað hvort konurnar höfðu þróað með sér einkenni um áfallastreituröskun. Alls höfðu 17 af þeim 55 konum sem höfðu upplifað ofbeldi einkenni um áfallastreituröskun. „Þær sem höfðu þróað með sér þessi einkenni eru líklegri til að takast á við erfiða geðheilsu og meiri andlega vanlíðan. Þar að auki var bæði andleg og líkamleg heilsa þessara kvenna verri. Afleiðingarnar eru miklar fyrir heilsu og velferð kvenna sem eru í sambúð þar sem ofbeldishegðun á sér stað,“ segir hún. Kannaðar voru mismunandi leiðir til þess að spyrja konurnar út í ofbeldið en ekki var marktækur munur á því hvort konurnar sögðu frá ofbeldinu eftir því á hvaða hátt var spurt. „Við vorum að velta upp hvort það gæti virkað hvetjandi fyrir þær að vinna úr sínum aðstæðum ef við greindum ofbeldið á ákveðinn hátt en þar virtist enginn munur á,“ segir hún. Þá kom í ljós að hópurinn sem leitaði til slysa- og bráðamóttöku hafði upplifað alvarlegra, grófara og tíðara ofbeldi. Niðurstöður þeirra úr rannsókninni voru þær að heilbrigðisstarfsmenn þurfi í auknum mæli að teygja sig í átt til kvenna sem eru þolendur ofbeldis.
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Fleiri fréttir Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Sjá meira