Nýtt einkennisstef Rásar 1: Ekkert stef nógu gott fyrir RÚV Birgir Olgeirsson skrifar 19. ágúst 2015 11:27 RÚV leitar að nýju einkennisstefi fyrir Rás 1 og er vonast til að það finnist fljótlega. Vísir/GVA
Ríkisútvarpið leitar enn að nýju einkennisstefi fyrir Rás 1 eftir að hafa hafnað öllum þeim 69 stefjum sem bárust inn í stefjasamkeppni RÚV frá 46 höfundum. RÚV efndi til samkeppninnar í mars síðastliðnum í samstarfi við Tónskáldasjóð Ríkisútvarpsins og var skilafrestur til miðvikudagsins 15. apríl. Í lýsingu á samkeppninni kom fram stefið eigi að lýsa Rás 1 á 21. öldinni en taka mið af hefð rásarinnar. Einnig var gerð sú krafa að hægt yrði að útfæra stefið í nokkrum gerðum, svo sem hátíðarútsetningu. Skipuð var þriggja manna dómnefnd sem tónskáldið Daníel Bjarnason fór fyrir ásamt Bergljótu Haraldsdóttur, verkefnastjóra Rásar 1, og Þresti Helgasyni, dagskrárstjóra Rásar 1. Samkvæmt fyrstu tilkynningu átti að kunngera úrslit í maí síðastliðnum.Ekkert stefjanna gat gegnt hlutverki einkennisstefs Nítjánda maí síðastliðinn var tilkynnt að úrslit yrðu kunngjörð í byrjun júní. Það var svo 10. júní sem höfundunum barst bréf frá RÚV þar sem þeim var þakkað fyrir þátttökuna og áhugann en þeim tilkynnt um leið að ekkert stefjanna gæti gegnt því hlutverki að vera einkennisstef Rásar 1 og því ljóst að leitin að myndi halda áfram. Verðlaunahafinn hefði fengið 250 þúsund krónur í höfundarlaun og til þess að fullklára stefið og ætlaði Ríkisútvarpið að sjá um kostnað vegna tækniþjónustu og hljóðfæraleiks ef þörf væri á. Höfundurinn hefði einnig fengið stefgjöld af öllum flutningi stefsins. Í tilkynningunni sem barst frá RÚV um samkeppnina í maí síðastliðnum var vonast til að þessi nýja hljóðmynd myndi væntanlega hljóma á öldum ljósvakans fyrir alla landsmenn komandi haust og segir Þröstur Helgason að enn sé vonast til þess.Þröstur Helgason, dagskrárstjóri Rásar 1, sat í dómnefnd í stefjasamkeppni Rásar 1. Vísir/Stefán„Ekkert sem kveikti í okkur“ „Við erum ekki búin að finna það sem við viljum en vonumst til að það gerist fljótlega.“ Hann segir ekkert stefjanna 69 hafa náð að heilla dómnefndina. „Við hlustuðum á þetta og það var ekkert sem kveikti í okkur. Við ákváðum frekar en að fara af stað með eitthvað sem við værum ekki fullkomlega ánægð með að leita þá aðeins betur.“ Spurður hvort að það eigi að leita sérstaklega til einhvers aðila eftir stefi svarar hann að RÚV sé að skoða ýmsar leiðir. „Við erum náttúrlega búin að prófa að halda samkeppni þannig að núna erum við að velta fyrir okkur að reyna að beita einhverjum öðrum leiðum.“ Þröstur segir lagið Ár vas alda í útsetningu Jóns Leifs hafa eitt sinn verið notað sem stef fyrir Rás 1 en lítið heyrst af því undanfarin ár. „Við erum að leita að einhverju í þá áttina,“ segir Þröstur sem vonast til að hlustendur Rásar 1 heyri nýtt einkennisstef rásarinnar einhvern tímann í haust.
Mest lesið Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Innlent „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent Fleiri fréttir Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir Sjá meira