Innlent

Ætla ekki að tilnefna fulltrúa í verðlagsnefnd búvara

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/pjetur
Stjórn BSRB og miðstjórn ASÍ hafa ákveðið að tilnefna ekki fulltrúa í verðlagsnefnd búvara. Undanfarin ár hafa samtökin tilnefnt einn fulltrúa til setu í nefndinni til að gæta hagsmuna neytenda.

Í tilkynningu frá ASÍ segir að í nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar komi skýrt fram að starf verðlagsnefndar búvara hafi verið farsælt og til hagsbóta fyrir neytendur og bændur. Niðurstaða skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sé á sama veg.

Þá sé ljóst að óhjákvæmilegt sé að endurskoða allt skipulag mjólkurframleiðslunnar, þar með talið verðlagninguna. Markaðurinn hafi undanfarið kallað eftir meiri mjólkurframleiðslu en rúmist innan núverandi mjólkurkvóta og ekki sé hægt að verða við þeirri framleiðsluaukningu á meðan núgildandi kerfi sé við líði.

„Aðalfundur Landssambands kúabænda í mars á þessu ári samþykkti ályktanir þess efnis að opinberri verðlagningu á mjólkurafurðum verði hætt. Jafnframt vilja kúabændur hverfa frá núverandi kvótakerfi í mjólkuriðnaði og koma málum þannig fyrir að búvörulög tryggi jafnt aðgengi bænda að markaði,“ segir í tilkynningunni og að í ljósi þessara breyttu viðhorfa og aðstæðna hafi samtökin ákveðið að tilefna ekki fulltrúa að nýju. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×