„Erum að sjá mjög afgerandi árangur af fiskverndaraðgerðum í þorski“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 11. júní 2015 17:25 Hafrannsóknastofnun leggur til 239 þúsund tonna þorskkvóta á næsta fiskveiðiári sem er yfir 20 þúsund tonna aukning frá yfirstandandi ári. vísir/stefán
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, segir að heilt yfir sé verið að nýta flesta, ef ekki alla nytjastofna sjávar þannig að veiðiálaginu er stýrt í samræmi við árgangastyrk þeirra. „Það sem er náttúrulega merkilegast og mikilvægast í þessu er að við erum að sjá mjög afgerandi árangur af fiskverndaraðgerðum sem við lögðum til í þorski fyrir 10 árum síðan og settar voru af stað 2007. Stjórnvöld hafa síðan haldið því til streitu alveg og sýnt skilning á mikilvægi þessa,“ segir Jóhann. Hafrannsóknastofnun leggur til 239 þúsund tonna þorskkvóta á næsta fiskveiðiári sem er yfir 20 þúsund tonna aukning frá yfirstandandi ári. Jóhann segir mjög ánægjulegt hvernig tekist hefur til með þorskinn.Hófsem nýtingarstefna í verki „Árið 2007 leggjum við til gríðarlegan samdrátt í þorskkvóta. Tilgangurinn var að reyna að snúa við þeirri þróun að nýliðun í stofninum var orðin svo veik. Við tengdum það að einhverju leyti við veikan hrygningarstofn og með því að draga svona mikið úr sókninni tókst að stækka hrygningarstofninn. Við sjáum því þessa aukningu núna frá ári til árs.“ Jóhann segir að við séum að sjá mjög hófsama nýtingarstefnu í verki sem geti gefið aukinn afla á komandi árum, stöðugleika í veiði og meiri hagkvæmni í veiðum. Þá nefnir hann einnig sterkan árgang í ýsu eftir sex léleg ár sem sé afar mikilvægt.Léleg nýliðun í hlýsjávarstofnum Aðspurður hvort einhverjir stofnar séu veikir um þessar mundir nefnir hann nokkra hlýsjávarstofna. „Þetta eru frekar litlir stofnar sem eru fyrst og fremst sunnan við landið eins og langa keila, blálanga, skötuselur og humar. Það hefur gætt lélegrar nýliðunar í þessum stofnum á undanförnum árum sem við höfum ekki náð að átta okkur alveg á af hverju er. Líklegast tengist þetta að einhverju leyti þessum hlýsjávaraðstæðum sem hafa verið á síðustu árum,“ segir Jóhann. Léleg nýliðun er því ávísun á samdrátt á næstu árum ef ekki verður breyting á.
Tengdar fréttir Þorskkvótinn ekki meiri síðan um aldamót Hafrannsóknastofnun kynnti í dag skýrslu sína um nytjastofna sjávar við Íslandsstrendur og aflahorfur fyrir fiskveiðiárið 2015/2016. 11. júní 2015 15:09 Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Skora á borgina að afturkalla uppsagnir við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Sjá meira
Þorskkvótinn ekki meiri síðan um aldamót Hafrannsóknastofnun kynnti í dag skýrslu sína um nytjastofna sjávar við Íslandsstrendur og aflahorfur fyrir fiskveiðiárið 2015/2016. 11. júní 2015 15:09