Hundrað þúsund á mann Sæunn Gísladóttir skrifar 22. september 2015 07:00 Björn Zoëga telur að mögulega væri hægt að mæta auknum útgjöldum í heilbrigðiskerfinu með meiri kostnaðarþátttöku efnameiri sjúklinga. nordicphotos/getty
Aukin skattheimta og vaxandi kostnaðarhlutdeild sjúklinga eru ekki sjálfbærar leiðir til að glíma við framtíðaráskoranir við fjármögnun heilbrigðiskerfisins. Stjórnvöld ættu frekar að horfa til aukinnar hagkvæmni í rekstri, til að mynda með því að virkja betur einkaframtakið í heilbrigðisþjónustu og skýrari afmörkun þeirrar þjónustu sem hið opinbera fjármagnar. Þetta kemur fram í Skoðun Viðskiptaráðs, Höldum heilsunni, sem gefin var út í gær. Björn Zoëga, formaður verkefnastjórnar um betri heilbrigðisþjónustu, segist ekki að öllu leyti sammála þessari ályktun. Hann telur að spítalinn hafi áður sannað að hægt sé að ná hagkvæmni hjá opinberum fyrirtækjum, án aukinnar einkavæðingar. Í Skoðuninni kemur fram að samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2016 verður 160 milljörðum varið til heilbrigðismála. Þetta er stærsti útgjaldaliður hins opinbera, eða um fjórðungur heildarútgjalda. Í fyrra námu útgjöld einstaklinga til heilbrigðismála um 33 milljörðum króna, sem jafngildir að meðaltali 100 þúsund krónum á mann. Innifalið í því eru aðalflokkarnir lyf, hjálpartæki, heilsugæsla, sérfræðiþjónusta, tannlækningar, sjúkrahúsþjónusta og sjúkraþjálfun.Björn ZoegaÁ síðustu 30 árum hafa heilbrigðisútgjöld sem hlutfall af landsframleiðslu aukist úr 7,3% upp í 8,9% samtímis því að aldurssamsetning þjóðarinnar breyttist tiltölulega lítið. Næstu 30 ár mun aldurssamsetningin breytast til muna; öldruðum mun fjölga ört og einstaklingum á vinnufærum aldri fækka. Því má áætla að heilbrigðisútgjöld muni vaxa nær þrefalt hraðar. Björn telur mögulega hægt að mæta auknum útgjöldum með hærri kostnaðarþátttöku efnameiri sjúklinga. „Ég held að það sé spurning um pólitíska útfærslu hvort eigi að taka sjúklingagjöld eða skattgreiðslu,“ segir Björn. Viðskiptaráð telur æskilegra fyrirkomulag að opinber útgjöld vegna heilbrigðismála fari í auknum mæli í gegnum Sjúkratryggingar. Fjárframlög til einstakra rekstraraðila myndu þá byggja á magni og gæðum þeirrar þjónustu sem viðkomandi aðili veitir. Það fyrirkomulag myndi jafnframt opna fyrir aukna aðkomu einkaaðila að veitingu heilbrigðisþjónustu sem hið opinbera fjármagnar. Með auknum einkarekstri á ákveðnum sviðum heilbrigðisþjónustu sem sambærileg eru við almenna atvinnustarfsemi telur ráðið að hægt sé að mynda samkeppni um þjónustu. Með því að bjóða út tímabundna samninga um veitingu þjónustu geta stjórnvöld tryggt að ávinningur af auknu rekstrarhagræði skili sér í lægri kostnaði fyrir skattgreiðendur. Björn telur alltaf gott að hafa ákveðið aðhald sem einkareksturinn gefur, en á móti kemur að þar er öðru vísi krafa um arðsemi og einhvers staðar verði hún tekin út. „Ég held að spítalinn hafi áður sannað að það er hægt að ná hagkvæmni hjá opinberum fyrirtækjum líka, það fer bara eftir því hvernig þú setur upp hvata, og setur upp stofnunina eða fyrirtækið. Mér finnst það ekki hafa sýnt sig neins staðar annars staðar að aukin einkavæðing sé lausn á málum. Ef umgjörðin hjá hinu opinbera er þannig að það séu í fyrsta lagi réttir hvatar og þar að auki að stofnuninni verði gert að reka sig með sömu forsendum og einkarekstur, þá get ég ekki séð að það sé annað en jákvætt fyrir samfélagið,“ segir Björn.
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira