Gylfi og félagar úr leik í enska deildarbikarnum | Úrslit kvöldsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2015 21:05 David Meyler fagnar sigurmarki sínu á móti Swansea City í kvöld. Vísir/Getty
Ensku úrvalsdeildarliðin Manchester City, Stoke City og Aston Villa komust öll áfram í fjórðu umferð enska deildabikarsins í kvöld en Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City eru úr leik. Það varð að framlengja leik úrvalsdeildarliðanna og spútnikliða haustsins, Leicester City og West Ham United, eftir að staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma. Swansea tapaði 1-0 á útivelli á móti b-deildarliði Hull City. Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn en David Meyler tryggði Hull sigurinn fjórum mínútum fyrir hálfleik. Manchester City átti ekki í miklum vandræðum með að slá út Sunderland eftir 4-1 sigur á Leikvangi Ljóssins í Sunderland. Sergio Agüero, Kevin De Bruyne og Raheem Sterling skoruðu allir í fyrri hálfleik þegar Manchester City komst í 4-0 en fjórða markið var sjálfsmark. Ola Toivonen minnkaði muninn í lokin. Peter Crouch tryggði Stoke útisigur á Fulham og Rudy Gestede skoraði eina markið í Birmingham-slagnum. Everton lenti undir á útivelli á móti Reading en þeir Ross Barkley og Gerard Deulofeu tryggðu Everton sigurinn í seinni hálfleik.Úrslit og markaskorarar í enska deildarbikarnum í kvöld:Aston Villa - Birmingham 1-0 1-0 Rudy Gestede (63.)Fulham - Stoke 0-1 0-1 Peter Crouch (33.)Hull - Swansea 1-0 1-0 David Meyler (41.)Leicester - West Ham 1-1 (Framlengt) 1-0 Joe Dodoo (6.), 1-1 Mauro Zárate (26.)Middlesbrough - Wolverhampton 3-0 1-0 Albert Adomah (37.), 2-0 Diego Fabbrini (57.), 3-0 Albert Adomah (64.).Preston - Bournemouth 1-1 (Framlengt) 0-1 Shaun MacDonald (23.), 1-1 Jordan Hugill (84.), 1-2 Marc Pugh (96.),Sunderland - Manchester City 1-4 0-1 Sergio Agüero (10.), 0-2 Kevin De Bruyne (25.), 0-3 Sjálfsmark Vito Mannone (33.), 0-4 Raheem Sterling (36.), 1-4 Ola Toivonen (83.)Reading - Everton 1-2 1-0 Nick Blackman (37.), 1-1 Ross Barkley (62.), 1-2 Gerard Deulofeu (73.).
Enski boltinn Mest lesið Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Fótbolti Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Fleiri fréttir Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Sjá meira