Garðbæingar eldast hratt Sveinn Arnarsson skrifar 23. júní 2015 07:00 Þreföldun aldraðra í Garðabæ frá 1998 gæti haft mikil áhrif á tekjur og gjöld sveitarfélagsins þegar fram í sækir. Mynd/Sigurjón Ólason
Garðbæingum í aldurshópnum 68 ára og eldri hefur fjölgað um 300% frá því um aldamótin. Til samanburðar hefur sama aldurshópi fjölgað aðeins um þriðjung á sama tímabili. Byggðaþróun sem þessi gæti haft nokkrar afleiðingar fyrir tekjur og útgjöld sveitarfélagsins ef fram heldur sem horfir. „Við viljum byggja fleiri íbúðir sem henta ungu barnafólki,“ segir formaður bæjarráðs Garðabæjar. Stefán Hrafn Jónsson„Það eru hlutfallslega fáar konur á barneignaraldri í sveitarfélaginu. Þetta getur haft þau áhrif að færri börn fæðast í sveitarfélaginu en ráð var fyrir gert. Því vaxa úr grasi minni árgangar. Íbúasamsetningin í dag gefur vísbendingu um að öldruðum muni fjölga enn meira næstu árin og að sama skapi muni börnum eitthvað fækka í sveitarfélaginu,“ segir Stefán Hrafn Jónsson félagsfræðingur. „Möguleg ástæða getur verið að ungt fólk hefur ekki efni á búsetu í Garðabæ“ Fyrirtækið KPMG vann skýrslu fyrir Garðabæ um fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Niðurstöður greiningar fyrirtækisins eru í öllum meginatriðum þær að rekstur Garðabæjar sé mjög góður miðað við samanburðarsveitarfélög og að skatttekjur sveitarsjóðs séu hærri af hverjum íbúa en í öðrum sveitarfélögum. Íbúar Garðabæjar eru jafnframt ánægðir með þá þjónustu sem sveitarfélagið býður upp á. Hins vegar segja greinarhöfundar ljóst að þjónusta við aldraða muni vega þyngra og þyngra í rekstri bæjarins á komandi árum. Hjúkrunarheimilið Ísafold tók til starfa í apríl 2013 og hefur verið rekið með 319 milljóna króna halla árin 2013 og 2014. Gert er ráð fyrir áframhaldandi hallarekstri stofnunarinnar að óbreyttu í skýrslunni. Uppsafnaður hallarekstur á Ísafold frá opnun 2013 og út áætlunartímann 2018 nemur einum milljarði króna. Áslaug Hulda JónsdóttirÁslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Garðabæjar, segir bæjarstjórn hafa rætt þessa breyttu íbúasamsetningu og mikilvægt sé að sporna við þessari þróun með markvissum aðgerðum. „Það er mikilvægt fyrir okkur að í Garðabæ búi fólk á öllum aldri og að jöfn dreifing sé milli aldurshópa. Hlutfallslega hefur eldri bæjarbúum fjölgað síðustu misseri í sveitarfélaginu og nú viljum við leita leiða til að yngra fólk geti í auknum mæli valið sér búsetu í Garðabæ. Við höfum rætt þetta í bæjarstjórn og skoðum nú leiðir til að auka jafnvægi í þessu sem og öðru,“ segir Áslaug Hulda.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Fleiri fréttir Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Sjá meira