Minkur grípur æðarunga á Seltjarnarnesi Jakob Bjarnar skrifar 23. júní 2015 10:53 Minkurinn er haldinn drápshvöt umfram það að vilja veiða sér til viðurværis og hann á til að brytja niður andarunga, þegar sá gállinn er á honum.
Íbúar Seltjarnarness eru uggandi vegna minks sem sést hefur bæði á golfvellinum og svo sást einn grípa sér æðarunga að morgni sunnudagsmorguns. Við Melshúsabryggju eystri, nánar tiltekið. Hann hvarf svo inn í grjótgarðinn, sjóvarnargarðinn sem er við ströndina, en það virðist algjört kjörlendi minksins. Að sögn Gísla Hermannssonar, sem er sviðsstjóri umhverfissviðs Seltjarnarnesbæjar er talsvert meira um tilkynningar um mink nú en í fyrra. Þær eru reyndar ekki svo margar að hægt sé að tala um plágu, einar fimm en það er margföldun á við í fyrra. Bærinn er í samstarfi við meindýraeyði sem hefur komið upp gildrum þar sem hans er að vænta. En grjótgarðurinn er hins vegar erfiður, þar er mikið um glufur og þó farið sé með hund á minkinn þá á hann litla möguleika á að ná honum. Vísir ræddi við mann sem fyrir þremur árum var að njóta sólseturs á Seltjarnarnesi, logn og friðsælt var en án nokkurrar skýringar kom styggð að andamömmu sem var á sundi þar með unga sína. Hún sló niður vængnum, eins og fuglar gera vilji þeir reyna að draga að sér athyglina, en allt kom fyrir ekki. Sem slanga birtist minkur í fjöruborðinu, milli andarmömmunnar og ungana, sem voru um tíu, og svo tók hann til við að brytja þá niður alla og hafði með sér tvo til að bíta í. Hinir lágu dauðir eftir. „Ég gleymi þessu aldrei, ég varð svo reiður,“ segir maðurinn, sem gat ekkert í málunum gert. Gísli segir að minkurinn virðist haldinn einhverri drápshvöt sem er umfram það að vilja veiða sér til viðurværis. „Við viljum helst ekki hafa mikið af þessum kvikindum hér.“
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Fleiri fréttir Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Sjá meira