Pasta á undir högg að sækja Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. september 2015 16:07 Uppskriftir er pastaréttum má finna í ritum frá 1. og 2. öld.
Sala á pasta hefur dregist mjög mikið saman á heimsvísu, að því er fram kemur í Washington Post. Í umfjöllun um málið á vefsíðu Wapo er greint frá því að skýringanna sé aðallega að leita útbreiddri skoðun fólks að pasta, eða einföld kolvetni, séu fitandi. Þannig er lagt að fólki í vinsælum megrunarkúrum eins og South Beach mataræðinu og lágkolvetnamataræðinu, að skera niður einföld kolvetni eins og pasta og annað hvítt hveiti. Þá nýtur glútenskert mataræði aukinna vinsælda þótt engar rannsóknir eða vísindi staðfesti skaðsemi glútens fyrir aðra en þá sem eru með glútenóþol. Frá 2008 hefur sala á pasta dregist saman um 12 prósent í Þýskalandi og 15 prósent í Grikklandi. Í Bandaríkjunum hefur sala á þurru pasta dregist saman um 6 prósent og 9 prósent í Ástralíu. Meira að segja á Ítalíu, heimalandi pasta, hefur salan dregist saman um fjórðung frá 2009. Pasta hefur verið vinsæll matur í mörg hundruð ár en uppskriftir að pastaréttum í þeirri mynd sem nútímamenn þekkja má finna í ritum frá 1. og 2. öld. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvers vegna það tók menn tæplega tvö þúsund ár að átta sig á því að pasta væri óhollt, ef það er yfirleitt jafn óhollt og menn vilja vera láta. Í pasta er að finna hátt hlutfall af einföldum kolvetnum sem brotin eru niður í sykrur í meltingarveginum og þaðan frásogaðar út í blóðrásina sem svo hækkar blóðsykurinn. Svar líkamans við þessu er að sleppa insúlíni og koma jafnvægi á blóðsykurinn. Blóðsykurshækkunin hefur lengi verið talin helsti ókosturinn við að neyta einfaldra kolvetna í of miklum mæli og þar af leiðandi pasta. Sérfræðingar í næringarfræði telja hins vegar að kolvetnin séu ekki vandamálið heldur ofneysla þeirra, rétt eins og þegar aðrar fæðutegundir eru annars vegar.
Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira