Lífið

Hefur safnað sér yfir 66 postulínsdýrastyttum

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Þórey á þrjár bækur sem fjalla um dýrastyttur frá merkjunum sem hún kaupir frá.
Þórey á þrjár bækur sem fjalla um dýrastyttur frá merkjunum sem hún kaupir frá. Vísir/Stefán
Þórey Svana Þórisdóttir hefur verið að safna postulínsstyttum af dýrum í yfir 15 ár. Safnið telur í kringum 66 styttur en það eru ekki hvaða dýrastyttur sem er sem fá að vera með í safninu.

„Þetta eru þrjú dönsk merki sem ég er að safna frá. Það eru Royal Copenhagen, Bing & Grøndal og Dahl Jensen. Ég kaupi þær ýmist sjálf eða set þær á óskalistann fyrir jólin eða afmælið. Uppáhaldsstytturnar mínar eru frá Dahl Jensen en þær eru svo lifandi, eins og þær séu á hreyfingu.“

Bæði Bing & Grøndal og Dahl Jensen hafa nú verið sameinuð Royal Copenhagen og framleiðslan verið færð til Taílands. „Allar þær styttur sem ég á eru framleiddar í Danmörku. Þær eru allar gamlar og ég fæ þær oftast í antík-búðum og skranmörkuðum. Þeim hefur farið fækkandi hér á landi en ég er nýkomin frá Danmörku og ég keypti mér níu styttur í þeirri ferð.“





Konunglegt Postulín Stytturnar hennar Þóreyjar eru með sinn eigin skáp. fréttablaðið/stefán
Þrátt fyrir að Þórey eigi mikinn fjölda af styttum þá er safnið ekki nærri því fullkomið. „Það eru enn þá styttur sem mig langar í sem ég hef ekki enn þá tímt að kaupa mér. Mig langar mjög mikið í uglu í raunstærð og íslenskan fálka. Ég myndi segja að helmingur safnsins sé fuglar en ég er að reyna að vinna í því að lækka hlutfallið og hafa meiri fjölbreytni. Það er bara oft þannig að fuglastytturnar eru langfallegastar. Þegar ég vel mér styttu þá er mikilvægt að hún tali til mín og sé lifandi, það þarf að vera tenging. Ég hef ekki farið út í það að safna styttum af mannfólki þar sem þær horfa oftast niður og mér finnst það mjög leiðinlegt og líflaust. Dahl Jensen gerði þó flottar mannastyttur en þær eru allt of dýrar. Sú dýrasta sem ég hef keypt mér kostaði 60.000 krónur en sú ódýrasta var í kringum 3.000 krónurnar.“

Þórey er með sér glerskáp þar sem hún geymir stytturnar en hann er orðinn alltof lítill fyrir sívaxandi safnið. „Ég var alltaf með þær úti á hillu en nú þegar þær eru komnar inn í skápinn þá þarf ég ekki að þurrka jafn mikið af þeim. Ég þríf þær alltaf vel þegar ég er nýbúin að kaupa þær og svo þarf ég voða lítið að hugsa um þær.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.