Lífið

Fólk um allan heim naut veislunnar

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Sóley heillaði gesti upp úr skónum.
Sóley heillaði gesti upp úr skónum. myndir/Ben Gruber
„Þetta var alveg frábærlega heppnað og aðsóknin hefur aldrei verið betri,“ segir Benedikt Reynisson, tónlistar- og kynningarstjóri Kex hostels, um tónlistarhátíðina KexPort sem fram fór á laugardaginn. Um er að ræða tónleikahátíð sem stóð frá klukkan tólf á hádegi til miðnættis.

„Þetta var í fjórða skiptið sem við höldum þetta og ég hugsa að það hafi allavega verið um þrjú þúsund manns sem voru að renna þarna í gegn yfir daginn þegar mest lét,“ segir Benedikt alsæll með hátíðina. Það voru þó ekki einungis bara hátíðargestir sem nutu sín því fólk úti um allan heim fékk að njóta hennar. „Við vorum að streyma hátíðinni á netinu, á þremur síðum KEXP.org sem er vefsíða útvarpsstöðvarinnar í Seattle, Kexland.is og MusicReach.tv. Við höfum fengið frábær viðbrögð úti um allt,“ bætir Benedikt við.

Tónleikarnir voru haldnir í portinu fyrir aftan Kex hostel og var hátíðin haldin til heiðurs KEXP í Seattle. KEXP er útvarpsstöð sem sótt hefur Ísland heim árlega allt frá árinu 2009 og hefur unnið óeigingjarnt starf til kynningar á íslenskri tónlist í Bandaríkjunum og víðar í heiminum. Fram komu tólf tónlistaratriði á jafn mörgum klukkustundum.

Á meðal þeirra sem fram komu voru Sóley, Valdimar, DJ Yamaho, Agent Fresco og Emmsje Gauti svo nokkur nöfn séu nefnd.

Myndirnar tók ljósmyndarinn Ben Gruber.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.