Lífið

Hárskrautið handgerðar söngtifur

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Katrín Sif var ánægð með það að fá tækifæri til þess að halda til Parísar.
Katrín Sif var ánægð með það að fá tækifæri til þess að halda til Parísar. Vísir/AndriMarinó
Hárgreiðslukonan Katrín Sif Jónsdóttir tók í síðustu viku þátt í því að greiða fyrir sýningu Bowie Wong á Haute couture-sýningu hans sem er hluti af Paris Fashion Week en aðaltískuvikan í París fer fram í september næstkomandi en Haute couture-sýningarnar eru haldnar fyrr.

Katrín hefur áður tekið þátt í að greiða fyrir tískuviku þó þetta sé að hennar sögn sú stærsta sem hún hefur tekið þátt í. „Ég hef farið tvisvar á tískuvikuna í Prag í gegnum Kevin Murphy sem er áströlsk hársnyrtivara,“ segir Katrín, sem er partur af Kevin Murphy-teyminu.

Hér má sjá eina af fyrirsætunum.Nordicohotos/Getty
Katrín fór með teyminu á tískuvikuna í Prag og var þar beðin um að vera einnig í teyminu á Haute couture-sýningunni í París og segist hlæjandi hafa verið fljót að svara þeirri bón játandi. 

Hún segir upplifunina í París talsvert ólíka þeirri í Prag. „Í París eru mörg hús að sýna í einu, þetta er miklu meiri nákvæmnisvinna og miklu meiri tími sem fer í hvern og einn hönnuð.

Allt þarf að vera alveg fullkomið,“ segir Katrín en hver hönnuður er með sitt hárgreiðsluteymi. 

Greiðslan sem gerð var fyrir sýninguna ber nafnið Cicada og er hönnuð af Masimo More og innblásin af samnefndu skordýri og gerði Bowie Wong handgerðar söngtifur sem settar voru í hár fyrirsætnanna fyrir sýninguna.

Það var allt á fullu fyrir sýninguna og Katrín segir gaman að hafa fengið að taka þátt.Mynd/KatrínSif
Katrín var alsæl með að hafa komist út til Parísar og að hennar sögn hefur hana alltaf dreymt um að taka þátt í tískuvikum. „Ég fór í fyrsta skipti á tískuvikuna í Prag fyrir þremur árum og var alveg þrjú ár fyrir það að koma mér upp tengiliðum og komast að því hvernig ég kæmist út,“ segir Katrín.

Hún útskrifaðist sem hárgreiðslukona árið 2009 og stofnaði stofuna Sprey í kjölfar útskriftar og segist hafa stefnt ómeðvitað á að verða hárgreiðslukona frá unga aldri. „Það var alltaf draumurinn. Ég er búin að vera gera hár síðan ég var svona tíu ára.“

Katrín vonast til að verkefnið muni opna henni fleiri dyr og segir gott að vera búin að skipa sér fastan sess í teyminu og að fólk sé farið að þekkja hennar vinnubrögð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.