Vilja stórefla flugsamgöngur til Vestmannaeyja Ingvar Haraldsson skrifar 23. júní 2015 07:00 Bæjarráð vill efla flugsamgöngur milli lands og Eyja. vísir/pjetur „
Það tekur að minnsta kosti tvö ár að smíða svona skip og við þurfum að bregðast við ástandinu þangað til,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja. Bæjarráð Vestmannaeyja hyggst koma á fót stýrihóp um hvernig efla megi flugsamgöngur til Vestmannaeyja þar til nýr Herjólfur verður tekinn í notkun. Ríkisstjórnin hefur þegar samþykkt að fara í útboð á nýrri ferju og Vegagerðinni hefur verið falið að annast útboðið. Elliði bendir á að frá því að Landeyjahöfn var tekin í notkun árið 2010 hafi Herjólfur ekki getað siglt inn í höfnina stóran hluta ársins. Samhliða byggingu Landeyjahafnar hafi átt að smíða nýja ferju sem ætti auðveldara með að sigla inni í höfnina.Elliði Vignisson„Þegar ákvörðunin var tekin um að byggja Landeyjahöfn þá var farið í umtalsverðar fjárfestingar út á þessa samgönguleið. Síðan hættir ríkið við helminginn af framkvæmdinni, það byggði bara höfn en ekki nýtt skip. Eftir þá ákvörðun ríkisins hafa þessar fjárfestingar staðið ónýttar í átta til níu mánuði á ári. Þetta er ákvörðun sem við verðum að bregðast við. Þar til nýtt skip kemur verður það varla gert nema með flugsamgöngum,“ segir Elliði. Frá því að Landeyjahöfn var tekin í notkun hefur áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Bakka lagst af. Elliði segir það stýrihópsins að skoða hvort hægt sé að endurvekja áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Bakka eða efla flug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja frekar. Stýrihópurinn á að skila bæjarráði tillögum fyrir 11. ágúst næstkomandi.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Fleiri fréttir Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Sjá meira