Dagpeningar námu um 4,6 milljónum stefán rafn sigurbjörnsson skrifar 22. júní 2015 07:00 Áhersla hefur verið á að laða skemmtiferðaskip til hafnarinnar. Fréttablaðið/Daníel
Hafnarfjarðarhöfn eyddi um níu milljónum í ferðalög starfsmanna hafnarinnar á árunum 2011 til 2014. Þar af var kostnaður við dagpeninga starfsmanna 4,6 milljónir króna. Til samanburðar eyddu allar aðrar stofnanir Hafnarfjarðarbæjar samanlagt 12,6 milljónum króna í dagpeninga fyrir starfsmenn sína. Þetta kemur fram í úttekt sem Capacent gerði á Hafnarfjarðarhöfn fyrir bæinn. Alls var farið í 32 ferðir á tímabilinu sem námu 108 ráðstefnudögum og 132 dögum þar sem dagpeningar voru greiddir út. Hafnarstjórinn, Már Sveinbjörnsson, fór í flestar þessara ferða eða 28 þeirra, ýmist einn eða með öðru starfsfólki hafnarinnar.Már SveinbjörnssonMár Sveinbjörnsson, hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar, segir að höfnin sé markaðsdrifin höfn og heimsóknir á ráðstefnur og fundi séu partur af markaðsstefnu hafnarinnar. „Árið 2006 og 2007 var skoðað hvernig mætti markaðssetja höfnina og þá var meðal annars skoðað að leggja áherslu á skemmtiferðaskip. Þetta var ákvörðun sem hafnarstjórnin tók á sínum tíma og við höfum fylgt því,“ segir Már. Höfnin er aðili að Cruise Iceland og Cruise Europe sem eru samtök um móttöku skemmtiferðaskipa til Íslands. Á þeirra vegum hafa starfsmenn hafnarinnar sótt margar ráðstefnur. Athygli vekur að árið 2014 fækkar ferðum umtalsvert en það ár var farið í fjórar ferðir og meðal annars var hætt við ferð til Miami til að skoða skemmtiferðaskip á vegum Cruise Iceland. „Við fórum þarna tvisvar á ári til Miami eða til Evrópu á vegum Cruise Iceland. Eftir ráðstefnuna 2013 þá mátum við það svo að þessar ferðir væru ekki að skila okkur ákveðnum ábata þannig að það var hætt við að fara árið 2014.“ Í úttekt Capacent kemur fram að bæjarstjóri Hafnarfjarðar skrifi undir allar dagpeningaskýrslur. „Allar greiðslur dagpeninga eru samkvæmt reglum ríkisins og hafa verið kvittaðar af bæjarstjóra,“ segir Már og bendir á að öll gögn um slíkt hafi verið opinber og ekkert sé falið í þeim efnum. Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, vildi ekki tjá sig um efni úttektarinnar.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Fleiri fréttir Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Sjá meira