Engir fundir og allt vitlaust á Alþingi 17. júní 2015 08:00 Þingstarf fór í uppnám í gær eftir að breytingartillaga Sigurðar Inga Jóhannssonar um makríl var kynnt í nefnd. VÍSIR/GVA
Tillaga Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um breytingar á frumvarpi um makríl varð til þess að störf á Alþingi komust í uppnám. Fundur átti að hefjast klukkan 11 en honum var ítrekað frestað og að lokum fór það svo að klukkan 17.15 hófst fundur þar sem ekkert annað var samþykkt en tillaga um stofnun Jafnréttissjóðs Íslands. Ekki verður að óbreyttu boðað til almenns þingfundar fyrr en í næstu viku. Tillaga ráðherra gengur út á það að makríllinn verði kvótasettur líkt og aðrar fisktegundir. Samkvæmt frumvarpi ráðherra var gert ráð fyrir því að kvóta yrði úthlutað til sex ára, framsal kvóta yrði óheimilt en tilflutningur milli skipa innan sömu útgerðar yrði heimill. Hart er deilt um frumvarpið og hefur stjórnarandstaðan gagnrýnt að úthlutað sé til sex ára. Þá hefur útgerðin gagnrýnt að sérreglur séu settar um makrílkvóta, aðrar en gilda um annan kvóta. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var stjórnarandstaðan tilbúin að sættast á, að óbreyttar forsendur varðandi makríl yrðu framlengdar í eitt ár, en ekki yrðu gerðar neinar varanlegar breytingar til lengri tíma. Tillaga ráðherra hleypti því öllu í bál og brand. Alls hafa rúmlega 51.000 manns ritað undir áskorun til forseta Íslands um að vísa í þjóðaratkvæðagreiðslu hverjum þeim lögum sem ráðstafi fiskveiðiauðlindum til lengri tíma en eins árs.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Sjá meira