Fyrirvörum aflétt vegna samnings Landsnets og PCC Nadine Guðrún Yaghi skrifar 8. júní 2015 07:15 Á myndinni eru Dietmar Kessler, fulltrúi framkvæmdastjórnar PCC, Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Peter Wenzel, aðstoðarforstjóri þróunarsviðs PCC. „
Þetta er fyrsta stóra línulagnarverkefnið í mjög mörg ár,” segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, um samning Landsnets og PCC Bakki Silicon um flutning raforku til fyrirhugaðs kísilvers á Bakka við Húsavík. Í fréttatilkynningu frá Landsneti í gær var greint frá því að öllum fyrirvörum vegna samningsins hefði verið aflétt af hálfu stjórnenda PCC og stjórnar Landsnets. „Fjármögnun er meðal þeirra fyrirvara sem hefur verið aflétt,“ segir Guðmundur og bætir við að undirbúningur framkvæmda sé kominn á fullan skrið. Samkvæmt samningnum skal Landsnet tryggja orkuflutning til kísilvers PCC frá meginflutningskerfinu og þeim framleiðslueiningum sem tryggja kísilverinu raforku. Áætluð aflþörf fyrsta áfanga verksmiðjunnar er 52 megavött og er miðað við að orkuafhending hefjist í nóvember 2017. „Þetta er stór og flókin framkvæmd og við höfum verið í rannsóknarvinnu og í undirbúningi í mörg ár. Nú er hönnunarvinnan í gangi og framkvæmdir verða næstu tvö árin,“ segir Guðmundur. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er 6,5 milljarðar króna. „Þessi kostnaður á bæði við um tengingu iðnaðarsvæðisins á Bakka við Þeistareykjavirkjun og tengingu virkjunarinnar við meginflutningskerfi Landsnets. Auk þess er kostnaður vegna tenginga PCC á Bakka sem Landsnet annast með í þessari tölu.“
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Sjá meira