Vandi ungra fanga brýnn en óleystur sveinn arnarsson skrifar 4. júní 2015 10:15 Háholt í Skagafirði. Þrjú meðferðarheimili eru á landinu fyrir unga fanga og eru þau öll staðsett í landsbyggðunum. Að mati Ríkisendurskoðunar þarf að halda vel á spöðunum og skapa viðunandi úrræði fyrir unga fanga.
Ríkisendurskoðun gagnrýnir velferðarráðuneytið fyrir að hafa ekki fundið varanlega lausn á vanda hóps ungmenna vegna vímuefnanotkunar og afbrotahegðunar sem og þess hóps ungmenna sem glímir við fjölþættan vanda, það er vímuefnavanda, afbrotahegðun og andlegt heilsuleysi. Árið 2011 hafi Barnaverndarstofa sent ráðuneytinu erindi um aðgerðir og taldi að sá hópur sem hvað lakast stæði þyrfti á nýju meðferðarheimili að halda nærri höfuðborgarsvæðinu. Barnaverndarstofa býr yfir þremur meðferðarstofnunum fyrir börn. Öll meðferðarheimilin eru í landsbyggðunum; Lækjarbakki á Rangárvöllum á Suðurlandi, Laugaland í Eyjafirði og á Háholti í Skagafirði. Þau tvö síðarnefndu eru rekin samkvæmt þjónustusamningi en heimilið að Lækjarbakka er alfarið rekið af íslenska ríkinu.Eygló HArðardóttir Félags- og húsnæðismálaráðherra„Velferðarráðuneytið er komið vel á veg með vinnu við ýmsar þær úrbætur sem Ríkisendurskoðun telur nauðsynlegar og ábendingar stofnunarinnar eru gagnlegar og unnið verður í samræmi við þær,“ segir Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. „Síðastliðið haust var skipuð nefnd um endurskoðun stjórnsýslu á sviði félagsþjónustu og barnaverndar og rennir skýrsla Ríkisendurskoðunar stoðum undir það starf.“ Ríkisendurskoðun bendir á að markviss viðbrögð ráðuneytisins við tillögum Barnaverndarstofu hefðu mögulega getað komið í veg fyrir þau vandræði sem sköpuðust vegna vistunar ungra fanga. Hvetur stofnunin ráðuneytið til að vinna að framtíðarlausn í málaflokknum þar sem Háholt sem vistunarstaður ungra fanga er bráðabirgðalausn og að nýtt meðferðarheimili á höfuðborgarsvæðinu geti falið í sér lausn á vistunarmálum ungra fanga sem og vanda ungmenna með vímuefnavanda og afbrotahegðun hvað varðar meðferðarúrræði. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar fullyrða þeir að lítið hefur áunnist við að leysa vanda barna sem glíma við fjölþættan vanda. Á sama tíma væri vandinn þekktur og viðurkenndur. Einnig er talið að mál þessu tengd hafi þróast til verri vegar. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins var gerður að lögum árið 2013 og jafnframt því var lögum um fullnustu refsinga breytt á þá leið að fangar sem væru undir átján ára aldri skuli vistaðir á heimili á vegum barnaverndaryfirvalda.
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Sjá meira