Borgar 784 krónur fyrir vinnuna sína Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 2. júní 2015 07:30 Friðrik Indriðason Fréttablaðið/ernir
Reykvíkingurinn Friðrik Indriðason er með minni ráðstöfunartekjur á hverjum mánuði fyrir hálft starf hjá Íslandspósti auk skertra atvinnuleysisbóta en þegar hann var á fullum atvinnuleysisbótum. Friðrik fékk sinn fyrsta fulla mánuð greiddan í gær en hann hóf störf hjá póstinum í apríl síðastliðnum. Fyrir hafði hann verið á atvinnuleysisskrá síðan í nóvember 2013. Friðrik var með 160.294 krónur í ráðstöfunartekjur á fullum bótum en eftir að hann fékk sér starf sem bílstjóri hjá póstinum vegna þreytu á atvinnuleysinu hafa þær minnkað í 159.510 krónur. Þannig er Friðrik í raun að borga 784 krónur fyrir að vinna hjá póstinum í stað þess að vera á fullum atvinnuleysisbótum.Friðrik verður af 784 krónum á mánuði eftir að hann réð sig í hálft starf við póstburð. Fréttablaðið/ernir„Maður myndi halda að maður myndi auka ráðstöfunartekjur við það að fá sér hálft starf,“ bætir Friðrik við og segir Vinnumálastofnun hvetja atvinnulausa til að útvega sér aukavinnu. Sjálfur vill Friðrik vara aðra við því þar sem ráðstöfunartekjur hans hafa minnkað við það. „Við það að fá mér hálft starf lækka ráðstöfunartekjurnar því Vinnumálastofnun segist ekki geta reiknað dæmið mitt, sem er ekki mjög flókið, það er að segja frítekjumark atvinnulausra, 59 þúsund krónur,“ segir Friðrik sem er langt frá því að vera sáttur. Bótaþegar eiga rétt á að vinna sér inn um 59 þúsund krónur áður en bætur eru skertar. Friðrik segir hins vegar að Vinnumálastofnun hafi ekki reiknað það með og að það sé hvergi að sjá á launaseðli hans. „Hvernig stendur á því að þau geti ekki reiknað út frítekjumarkið? Það er þúsund króna spurningin,“ segir Friðrik. Unnur Sverrisdóttir, sviðsstjóri Vinnumálastofnunar, segir málið ekki tengjast frítekjumarkinu. „Við fórum að skoða þetta og þetta á sér allt eðlilegar skýringar. Það er ekkert misjafnt hérna á ferðinni,“ segir Unnur sem gat þó ekki útskýrt málið fyrir blaðamanni því upplýsingarnar væru persónulegar. Friðrik gefur lítið fyrir svör Vinnumálastofnunar og segist vera búinn að fá upp í kok af stofnuninni. Hann reynir nú að fjarlægja sig frá stofnuninni og hefur ekki áhuga á frekari samskiptum við Vinnumálastofnun, sem Friðrik kallar helsjúka.
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Sjá meira