Kúguðu milljón af öldruðum bónda Sveinn Arnarsson skrifar 1. júní 2015 07:00 Fjöldi smáhluta sem erfitt var að koma í verð fundust daginn eftir atburðinn við Goðafoss skammt frá heimili mannsins. Fréttablaðið/GVA
Þrír einstaklingar, tveir karlar og ein kona, játuðu fyrir héraðsdómi Norðurlands eystra að hafa farið inn á heimili áttræðs karlmanns í Þingeyjarsveit í apríl í fyrra og haft í hótunum við hann. Var greiðslukort mannsins tekið ófrjálsri hendi sem og fjöldi smáhluta og reynt að milli færa eina milljón króna af heimabanka mannsins. Sakborningar voru allir í mikilli vímuefnaneyslu þetta umrædda kvöld. Þremenningarnir, sem höfðu verið að skemmta sér vegna afmælis konunnar, bönkuðu upp á hjá manninum, sem er bóndi í Þingeyjarsveit, um átta um kvöldið. Töldu þau að hann skuldaði konunni, sem er á þrítugsaldri, fjármuni vegna gamalla saka. Hann yrði að borga konunni ellegar hljóta verra af. Fórnarlambið er fætt árið 1935 og átti því við ofurefli að etja. Mennirnir tveir þekktu ekki til mannsins en konan hafði verið í sveit á sama bæ og hann þegar hún var yngri. Hafði hann misnotað hana kynferðislega og hlotið dóm fyrir. Þessir atburðir höfðu lagst þungt á konuna sem vildi á þessum tíma fá greiddar bætur frá manninum. Nokkur hluti fjárkúgunarinnar af öldungnum var eitt meginsönnunargagn fyrir dómi síðastliðinn föstudag. Einn sakborninganna tók um 20 mínútna langan bút upp sem hljóðskrá og var hluti hennar spilaður fyrir réttinum. Í því hljóðbroti heyrist hvar þau hóta ellilífeyrisþeganum að ef hann gengi ekki að kröfum þeirra myndu aðrir menn koma í málið sem búsettir væru á höfuðborgarsvæðinu. Einnig sagði konan að vegna óuppgerðra saka við manninn skyldi hún kæra hann fyrir nauðgun sem þau myndu nota gegn honum. Fórnarlambið sagðist fyrir rétti hafa ætlað á söngskemmtun þetta kvöld en ekki komist þar sem þau héldu honum inni í eldhúsi hjá sér og voru nokkuð ör. Höfðust þau við í íbúðinni í tæpar þrjár klukkustundir. Höfðu þau ýmislegt lauslegt á brott með sér og reyndu að millifæra eina milljón eins og áður segir í heimabanka mannsins. Greiðslukort mannsins notuðu þau til að kaupa áfengi á Akureyri að lokinni árásinni. Eru þau kærð fyrir fjárkúgun, gripdeild og ógnanir sem þau höfðu í frammi við ellilífeyrisþegann.
Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Sjá meira