Kaþólikkar safna fyrir kirkju á Selfossi Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 13. maí 2015 12:00 Fyrirhugað er að kaþólska kirkjan á Selfossi verði á „Sýslumannstúninu“.
Kaþólikkar á Íslandi safna nú fyrir nýrri kirkju sem þeir hyggjast reisa á Selfossi. Að sögn Denis O‘Leary, sóknarprests í Maríukirkju í Breiðholti, er gert ráð fyrir að um 200 kirkjugestir fái pláss í nýju kirkjunni. Nú eru um tólf þúsund manns skráðir í kaþólska söfnuðinn í Íslandi en vitað er að kaþólikkar hér eru enn fleiri. „Það hefur fjölgað mikið í kaþólska söfnuðinum á Íslandi, sérstaklega Pólverjum og Filippseyingum. Fjölmargir kaþólikkar hafa einnig komið til Íslands frá Litháen og víðar að. Íslendingum í söfnuðinum hefur einnig fjölgað. Fjölskyldurnar stækka og svo ganga alltaf nokkrir Íslendingar í söfnuðinn á hverju ári,“ greinir O‘Leary frá. Kaþólsku kirkjunni er skipt niður í sex sóknir og fellur Suðurland undir St. Maríusókn. Að sögn O‘Leary er messað reglulega á Selfossi og í nálægum sveitarfélögum og eru kirkjur þjóðkirkjunnar fengnar að láni til þess. Fyrstu drög að teikningu nýrrar kirkju eru tilbúin. Ekki liggur fyrir hvenær hægt verður að hefjast handa við framkvæmdir. Það fer eftir því hversu vel gengur að safna. „Þetta hefur gengið fremur hægt. Þetta er kannski ekki besti tíminn svona eftir kreppu. Við þurfum aðstoð utan frá til stórra framkvæmda,“ segir sóknarpresturinn. Formaður Félags kaþólskra leikmanna, Gunnar Örn Ólafsson, segir hjálparsamtök í Þýskalandi safna peningum fyrir kaþólska söfnuði á Norðurlöndum. „Við höfum fengið styrki frá þeim til viðhalds á byggingum og til að reisa nýjar byggingar.“ Kaþólsku kirkjurnar á Íslandi eru Dómkirkja Krists konungs í Landakoti, Maríukirkja í Breiðholti, St. Jósefskirkja í Hafnarfirði, St. Péturskirkja á Akureyri, St. Þorlákskirkja á Kollaleiru, Reyðarfirði, og kirkja heilags Jóhannesar Páls II. á Ásbrú í Reykjanesbæ. Nokkrar kapellur eru einnig hér.ibs@frettabladid.is
Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Innlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Fleiri fréttir Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Stefnir í norðanhríð í vikunni Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Sjá meira