Íbúar ósáttir og boða málaferli við borgina viktoría hermannsdóttir skrifar 10. mars 2015 07:00 Jón Reynir Magnússon, formaður húsfélagsins að Þorragötu 5-9, segir íbúa afar ósátta við fyrirhugaðar breytingar á starfi Þorrasels. Fréttablaðið/GVA „
Það hefur enginn áhuga á að fara í stríð við þetta ágæta fólk sem þarna býr en við þurfum bara að reka þetta innan fjárheimilda,“ segir Stefán Eiríksson, sviðstjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Íbúar fjölbýlishússins að Þorragötu 5-9 ætla að höfða mál gegn Reykjavíkurborg, ef ekki verður horfið frá þeim áformum að breyta eða hætta starfsemi Þorrasels sem er dagdvöl sem borgin hefur rekið þar fyrir aldraða. Velferðarráð samþykkti í október að breyta starfsemi Þorrasels úr dagdvöl fyrir aldraða í skrifstofur fyrir starfsemi á vegum ráðsins. „Við teljum að það sé verið að brjóta lög gegn okkur,“ segir Jón Reynir Magnússon, formaður húsfélagsins Þorragötu 5-9. Jón Reynir segir brotið gegn rétti íbúanna sem búa í fjölbýlishúsinu þar sem engin grenndarkynning hafi farið fram á þeim breytingum sem velferðarráð Reykjavíkur ætlar að gera á Þorraseli. Byggingaleyfi fyrir lóðinni var gefið út fyrir fjölbýlishús og þjónustumiðstöð fyrir aldraðra. Samkomulag milli húsfélagsins og borgarverkfræðingsins er í gildi en þar segir til um að breytingar á skipulagi hvors lóðarhluta sé háð samþykki beggja aðila þar sem kemur fram í lóðarleigusamningi að lóð 3-9 við Þorragötu sé ein lóð og á henni séu kvaðir, meðal annars að þjónustumiðstöð aldraðra sé á lóðinni. Því sé það brot á lögum um fjöleignarhús að breyta starfseminni ef það liggi ekki fyrir samþykki íbúanna. Jón Reynir segir íbúa hússins ósátta við að starfsemi Þorrasels verði breytt. Færa á starfið yfir á Vesturgötu þar sem fyrir er starfssemi fyrir eldri borgara. Sjálfur hefur Jón Reynir búið í húsinu í 20 ár. „Sumir hér hafa keypt íbúðir hér og gert ráð fyrir þessari þjónustu hér við hliðina á sér og því eru þetta að vissu leyti svik við þá. Þessi þjónustumiðstöð er ekkert sérstaklega byggð fyrir okkur í sjálfu sér en það eru nokkrir sem búa hér sem hafa notfært sér þetta,“ segir Jón Reynir. Stefán Eiríksson segir að málið sé í samráðsferli. „Við erum í þessu ferli núna að ræða við alla hluthafandi aðila núna, þar á meðal íbúa þarna og þeirra mótmæli hafa komið fram mjög skýrt og afdráttarlaust,“ segir Stefán. Hann segir þjónustuna í Þorraseli hafa verið rekna með miklum halla undanfarin ár og því sé verið að leita leiða til hagræðingar. „Vandinn er sá að við erum ekki að reka þarna þjónustusel eins og var gert ráð fyrir tuttugu og eitthvað árum heldur erum við að reka dagdeild fyrir aldraða sem er greidd með þjónustugjöldum frá ríkinu. Undanfarin ár hefur þetta ekki staðið undir þeim rekstri sem þarna er og það er margra milljóna halli á hverju ári. Við getum ekki með ábyrgum hætti haldið því úti þannig.“
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Fleiri fréttir Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Sjá meira