Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins togast á um tekjur af auglýsingum garðar örn úlfarsson skrifar 6. febrúar 2015 07:45 "Ef menn telja nauðsynlegt að auglýsing nái til allra, þá er hún betur komin inni á opnum fjölmiðli á vefnum,“ segir markaðsstjóri Austurfréttar og vísar á vefútáfu félagsins. Fréttablaðið/valli
Stefán Bogi Sveinsson, bæjarfulltrúi í Fljótsdalshéraði og markaðsstjóri Austurfréttar, vill að sveitarfélög eystra auglýsi meira í fjölmiðlum fyrirtækisins. Í bréfi til bæjaryfirvalda í Fljótsdalshéraði áætlar Stefán að síðustu viku hafi Fljótsdalshérað og Fjarðabyggð auglýst fyrir samtals 295 þúsund krónur í Dagskránni og 31 þúsund krónur í Austurglugganum. „Dagskráin er auglýsingamiðill en rétt er að halda því til haga að hún er ekki fjölmiðill. Þar á sér ekki stað nein ritstjórnarvinna og áhrif Dagskrárinnar sem slíkrar á samfélagið eru engin í þessu samhengi,“ segir Stefán sem kveður viðskipti frá Fjarðabyggð og Fljótsdalshéraði myndu gera kleift að ráða að minnsta kosti einn blaðamann til viðbótar. „Í rekstri þar sem barist hefur verið við að ná að halda tveimur manneskjum í vinnu við þetta, þá myndi þriðja manneskjan breyta ansi miklu,“ útskýrir Stefán sem kveðst ekki sammála því sjónarmiði að sveitarfélögin verði að auglýsa í miðli sem berist „öllum“. Ekkert sé athugavert við að sveitarfélögin beini viðskiptum sínum til áskriftarmiðla. „Þá veit fólk einfaldlega hvar það á að leita eftir tilkynningum sveitarfélagsins. Þannig geta sveitarfélögin eflt fjölmiðlun með því að hvetja íbúa sína til að vera áskrifendur,“ segir Stefán Bogi. Gunnhildur Ingvarsdóttir, bæjarfulltrúi og flokkssystir Stefáns í Framsóknarflokknum sem er í minnihluta í bæjarstjórn, vék ásamt Stefáni af fundi þegar bréf hans var tekið fyrir á miðvikudag. Gunnhildur er eigandi Dagskrárinnar. Áður en hún yfirgaf salinn sagðist hún vilja leiðrétta það að Dagskráin væri ekki fjölmiðill. „Þessu mótmæli ég harðlega,“ sagði Gunnhildur sem kvaðst hafa flett orðinu fjölmiðli upp í Orðabók Háskóla Íslands. „Það er tæki til að dreifa upplýsingum til mikils mannfjölda á stóru svæði,“ vitnaði hún í orðabókina og benti á að Dagskráin kæmi út í sex þúsund eintökum og væri dreift frá Bakkafirði til Skaftafellssýslu. „Ég held að það sé nokkuð augljóst að við reynum að auglýsa þar sem dreifingin er mest,“ sagði Þórður Már Þorsteinsson úr Á-lista. Bæjarstjórnin samþykkti síðan að mælast til þess við bæjarstarfsmenn að nýta auglýsingar í staðbundnum fjölmiðlum, þegar það þætti vænlegt. „Taka verður þó tillit til þess að í tilfellum sveitarfélaga þarf að tryggja að slíkar auglýsingar komi fyrir sjónir sem flestra íbúa.“
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Fleiri fréttir Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Sjá meira