McClaren: Vonandi verður þetta snúningspunktur á tímabilinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. desember 2015 10:45 McClaren og félagar eru enn í fallsæti þrátt fyrir sigurinn á Liverpool. vísir/getty
Steve McClaren var létt eftir 2-0 sigur Newcastle United á Liverpool í 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær. Sigurinn var kærkominn fyrir Newcastle-menn sem hefur gengið illa það sem af er tímabili. Með sigrinum jöfnuðu lærisveinar McClaren Norwich og Bournemouth að stigum en þrátt fyrir það er liðið enn í fallsæti. „Þetta var risastór sigur, ótrúlega mikilvægur,“ sagði McClaren eftir sigurinn á St. James' Park í gær. „Þetta hafa verið erfiðar tvær vikur. Liðið og allir sem tengjast því, hafa legið undir mikilli gagnrýni, og það réttilega. Við höfum haldið ró okkar og gerðum það eina sem hægt er að gera; svöruðum fyrir okkur inni á vellinum.“Wijnaldum fagnar marki sínu í gær.vísir/gettyStaðan var markalaus í hálfleik í leiknum í gær en á 69. mínútu komst Newcastle yfir þegar Martin Skrtel, varnarmaður Liverpool, stýrði skoti Giorginio Wijnaldum í netið. Það var svo Wijnaldum sem gulltryggði sigur Newcastle þegar hann skoraði annað mark liðsins í uppbótartíma. Þetta var sjöunda mark Wijnaldum í deildinni en Hollendingurinn hefur verið besti leikmaður Newcastle á tímabilinu. McClaren var ánægður með frammistöðu Newcastle í gær en segir að leikmenn liðsins megi ekki ofmetnast. „Við sýndum úr hverju við erum gerðir. Vonandi verður þetta snúningspunktur á tímabilinu,“ sagði McClaren. „Það eru hæfileikar til staðar í liðinu og í dag sá ég trú og sjálfstraust sem hefur ekki verið sjáanlegt að undanförnu.“ Newcastle á tvo leiki eftir fram að jólum. Sunnudaginn 13. desember mætir liðið Tottenham og laugardaginn 19. desember fær Newcastle botnlið Aston Villa í heimsókn.
Enski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Grindavík mokar inn verðlaunum Körfubolti Fleiri fréttir Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Sjá meira