Leggur áherslu á málefni innflytjenda og vill alvöru samtal um kvótakerfið Þorbjörn Þórðarson skrifar 28. ágúst 2015 18:40 Óttarr Proppé þingmaður Bjartrar framtíðar. 365/ÞÞ
Óttarr Proppé alþingismaður gefur á kost á sér sem formaður Bjartrar framtíðar á ársfundi flokksins 5. september nækstomandi. Hann nefnir málefni innflytjenda og sjávarútvegsmál sem stór baráttumál. Óttarr er annar flokksmaðurinn til að lýsa yfir framboði en áður hafði Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður bæjarstjórnar í Hafnarfirði og bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar lýst yfir áhuga á forystuhlutverki í flokknum.Hratt fjarað undan fylginu á skömmum tíma Þetta graf (sjá myndskeið með frétt) sýnir glögglega fylgishrun Bjartrar framtíðar. Eftir að hafa fengið 8,2 prósent í síðustu þingkosningum mældist flokkurinn með 17,5 prósent í í mars í fyrra. Á þessu ári fór síðan að molna undan fylginu og í síðustu könnunum hefur flokkurinn verið að mælast með undir 5 prósentum. Verði það niðurstaðan í kosningunum eftir tvö ár nær Björt framtíð engum manni inn á þing. Fræðimenn í stjórnmálafræði hafa fært fyrir því rök að fylgishrun Bjartrar framtíðar megi að einhverju leyti skýra með skírskotunar til þess að miðjuflokkar njóti um þessar mundir lítilla vinsælda, ekki bara á Íslandi heldur víðar í álfunni. Í umróti stjórnmálaþróunar nútímans leiti kjósendur í auknum mæli til jaðarflokka sem stefni að róttækari breytingum á samfélaginu. Flokkar eins og Björt framtíð tapi á því. Óttarr Proppé segir að flokkurinn þurfi að vera duglegri að koma stefnu sinni á framfæri. „Ég held að málefnastaða Bjartrar framtíðar og grunngildin okkar séu mjög sterk og skýr. Og það er samstaða um þau innan flokksins. Þetta eru hlutir sem er verið að kalla eftir í samfélaginu. Ég held að það klagi upp á okkur að bæta samtal við kjósendur,“ segir Óttar. En hvaða mál leggur Óttar mesta áherslu á? „Ég persónulega hef mjög mikinn áhuga á málefnum útlendinga og innflytjenda og mun örugglega leggja áherslu á þau mál.” Hann nefnir efnahagsmál, velferðarmál og fiskveiðistjórnunarkerfið. „Við eigum það inni í pólitíkinni að taka djúpt og mikið samtal um sjávarútvegsmálin og skiptingu arðs af auðlindum. Það er mjög heitt mál sem pólitíkin hefur kannski dálítið veigrað sér að fara á fullt í,“ segir Óttarr.Veiðiheimildir í uppboðskerfi Björt framtíð hefur það á stefnuskránni að veiðiheimildir á nýjum fisktegundum fari beint á uppboð. Þá vill flokkurinn að makríllinn fari yfir í uppboðskerfi á sex árum og í kjölfarið fari aðrar tegundir inn í slíkt kerfi. Markmiðið er að aflaheimildir vegna allra fisktegunda verði komnar í uppboðskerfi í fyllingu tímans.
Tengdar fréttir Ekki hægt að skrifa fylgishrunið á Guðmund Prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir ekkert styðja þá ályktun að skrifa megi fylgishrun Bjartrar framtíðar á formann flokksins. 24. ágúst 2015 10:30 Föstudagsviðtalið: Treystir sér til forystustarfa Óttarr Proppé segir ástríðu sína fyrir pólítík ekki endilega vera á spíssinum. Hann útilokar þó ekki formannsframboð. Hann segir viðvarandi fylgistölur Bjartrar framtíðar sýna að það sé sambandleysi frá þeim til kjósenda. 28. ágúst 2015 09:00 Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Innlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Flughált í höfuðborginni og víðar um land Innlent Ingibjörg býður sig fram í formanninn Innlent Fleiri fréttir Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Sjá meira
Ekki hægt að skrifa fylgishrunið á Guðmund Prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir ekkert styðja þá ályktun að skrifa megi fylgishrun Bjartrar framtíðar á formann flokksins. 24. ágúst 2015 10:30
Föstudagsviðtalið: Treystir sér til forystustarfa Óttarr Proppé segir ástríðu sína fyrir pólítík ekki endilega vera á spíssinum. Hann útilokar þó ekki formannsframboð. Hann segir viðvarandi fylgistölur Bjartrar framtíðar sýna að það sé sambandleysi frá þeim til kjósenda. 28. ágúst 2015 09:00