Takmörkun á orkuafhendingu frestað Svavar Hávarðsson skrifar 23. september 2015 07:00 Í góðu vatnsári fyllist Hálslón síðla sumars og affall lónins myndar þá hinn tignarlega foss Hverfanda. Mynd/Landsvirkjun
Forsendur í vatnsbúskap Landsvirkjunar eru gjörbreyttar í kjölfar hlýinda og rigninga á undanförnum tveimur vikum – sérstaklega á Austurlandi. Takmörkun á orkuafhendingu hefur verið frestað um einn mánuð. Þótt enn ríki óvissa um fyllingu miðlunarlóna hefur staðan snarbatnað. Landsvirkjun sendi tilkynningu til viðskiptavina sinna 1. september síðastliðinn og um að vart yrði komist hjá skerðingu á orkuafhendingu frá næstu mánaðamótum að telja. Fylling í uppistöðulónum á þeim tímapunkti var óvenjulega lítil. En í september hefur heildarfylling miðlana fyrirtækisins batnað verulega og stendur núna í rúmlega 85% – 5% meira en björtustu vonir stóðu til t.d. í Hálslóni. Fyllingin var aðeins 69% í lok ágúst. Hefur hækkað í Hálslóni um 12 metra í þessum mánuði og fyllingin farið úr 59% í 84%. Fylling Þórisvatns og Hágöngulóns hefur farið úr 83% í 89% og á sama tímabili úr 67% í 74% í Blöndulóni.Hörður ArnarsonHörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði í viðtali við Fréttablaðið þegar vika var liðin af september að eitthvað sérstakt þyrfti til að komast hjá skerðingum frá 1. október. Miðað við meðalhorfur um 80% fyllingu lóna 1. október og meðalrennsli í vetur og fram á næsta vor, mátti þá reikna með að orkusala Landsvirkjunar gæti dregist saman um 3,5 prósent í vetur. Hún gæti orðið minni eða meiri en því ræður vetur konungur einn, sagði Hörður þá, eins og komið hefur í ljós.Það er reyndar gríðarlegur munur á orkuvinnslunni tengdur þessum duttlungum náttúrunnar en hægt er að vinna allt að því 40 prósentum meira af orku í hárennslisári en lágrennslisári. Rétt er að taka fram að þessar sveiflur hafa lítil sem engin áhrif á aðra en stóriðjuna í landinu. Flestir á heildsölumarkaði raforku eru að kaupa forgangsorku sem er ekki skerðanleg.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Fleiri fréttir „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Sjá meira