Nýr völlur fjarlægur möguleiki Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. júní 2015 07:00 Bergur Álfþórsson, formaður bæjarráðs Voga á Vatnsleysuströnd.
Samgöngur Stýrihópur um flugvallarkosti á höfuðborgarsvæðinu vill að skilyrði í Hvassahrauni verði fullkönnuð með nauðsynlegum rannsóknum strax næsta vetur. Hvassahraun er að hluta til í landi Voga á Vatnsleysuströnd og að hluta til í Hafnarfirði. Bergur Álfþórsson, formaður bæjarráðs Voga á Vatnsleysuströnd, segir tillögur nefndarinnar koma sér á óvart að sumu leyti og það sé alls óvíst að þetta verði að veruleika. „Ég á hins vegar ekki von á því að sveitarfélagið sem slíkt fari neitt að setja sig upp á móti því að fá þennan flugvöll. Það er bara svo langur vegur í það að hugmyndina verði farið að ræða af einhverri alvöru. En þetta myndi líklega skapa tekjur fyrir bæjarfélagið,“ segir Bergur í samtali við Fréttablaðið. Ólöf Nordal, ráðherra samgöngumála, segist ánægð með að Rögnunefndin hafi lokið störfum og skilað skýrslu um vinnu sína. „Nú er þessum kafla lokið og ég vil þakka nefndinni fyrir sín störf. Ég hef enn ekki komist í að lesa skýrsluna og því get ég ekki tjáð mig efnislega um hana að svo stöddu,“ segir Ólöf. Ólöf er þeirrar skoðunar að flugvöllur í Vatnsmýri sé heppilegasta staðsetning fyrir innanlandsflugvöll á höfuðborgarsvæðinu. „Já, ég hef sagt og látið hafa það eftir mér þegar ég var þingmaður að ég telji farsælast að hafa flugvöll í Vatnsmýri,“ segir Ólöf.
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Erlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Fleiri fréttir Willum vill ekki verða formaður Framsóknar Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Sjá meira