Metfjöldi sækir um í Lögregluskólann Snærós Sindradóttir skrifar 25. júní 2015 08:00 Sigríður Hrefna Jónsdóttir er formaður valnefndar Lögregluskólans vísir/gva
Aldrei hafa fleiri sótt um inngöngu í Lögregluskóla ríkisins, eða 158 manns. Umsóknarfrestur rann út á mánudag. „Konur hafa eflst svo á undanförnum árum. Þær eru fyrir löngu búnar að átta sig á því að þær eru jafnokar strákanna. Þeim þykir þetta starf jafn spennandi og strákunum,“ segir Sigríður Hrefna Jónsdóttir, formaður valnefndar Lögregluskólans. Sprenging varð í aðsókn kvenna í Lögregluskólann árið 2013, síðast þegar tekið var inn í skólann. Aðsókn kvenna, um fjörutíu prósent umsókna, hefur haldist síðan þá. „Ég rek það til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur [þáverandi innanríkisráðherra] og hvernig hún talaði um fjölgun kvenna innan lögreglunnar.“ Sigríður Hrefna segir að þegar nýjum nemendum sé veitt innganga í skólann hafi farið fram flókið mat á einstaklingunum. „Við reynum að hafa kvarðana hlutlæga og málefnalega. Við stingum ekki bara hendi út og finnum hvernig veðrið er. Þetta snýst um að vanda sig,“ segir Sigríður. „Það er í mínum huga deginum ljósara að það þarf allt að fara saman. Það þarf að hafa það þrek sem þarf líkamlega og að búa yfir þroska til að eiga samskipti við fólk, og þjónustulund.“ Ferilskrá umsækjenda er rækilega skoðuð og gengið úr skugga um að þeir eigi ekki við vímuefnavanda að stríða. „Í langflestum tilfellum þá segir það sig sjálft að umsækjandi sem hefur ekki verið á vinnumarkaði býr væntanlega yfir minni þroska en sá sem hefur verið lengi á vinnumarkaði, þó það sé ekki algilt,“ segir Sigríður. Sálfræðingur er hluti af valnefndinni og umsækjendur mega búast við því að undirgangast sálfræðimat og streitupróf. Aðspurð hvort kynið, karlar eða konur, komi betur út úr mati nefndarinnar á andlegum þáttum segir Sigríður: „Þegar það var útskrifað síðast úr skólanum þá var niðurstaðan sú að það voru sjötíu prósent konur á móti þrjátíu prósentum karla. Það var ekki á grundvelli þess að það væri handvalið heldur var það á grundvelli niðurstöðu ferlisins.“ Hún segir að ekki sé horft sérstaklega til kyns þegar tekið er inn í skólann. „Þeir hæfustu fara í gegn. Þar sem er vafaatriði þar hugsum við um konuna, ef þetta eru jafn hæfir einstaklingar.“ Búist er við því að umsóknarferlinu ljúki um miðjan júlí.
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Erlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Fleiri fréttir „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Sjá meira