Gagnrýna ráðningu Gunnars Birgissonar Linda Blöndal skrifar 10. janúar 2015 20:00
Ráðning Gunnars I. Birgissonar sem bæjarstjóra Fjallabyggðar kom mörgum í opna skjöldu, segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingmaður kjördæmisins og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Ólafsfirði. Bjarkey gagnrýnir að nýr meirihluti í Fjallabyggð skuli velja umdeildan stjórnmálamann til verksins en margir aðrir hafi getað tekið að sér starfið. Minnihlutinn í bæjarstjórn Fjallabyggðar heyrði fyrst af ráðningunni í gærkvöldi sem þingmaður í kjördæminu. Bjarkey sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að gagnrýni kæmi úr öllum áttum í Fjallabyggð.Kemur flatt upp á bæjarbúa „Þetta kom mér mjög á óvart sem og fleirum eins og sjá má á á miðlum að fleirum hefur komið þetta á óvart í Fjallabyggð“, sagði Bjarkey. „Ég hefði viljað sjá þetta tækifæri hjá þessum nýja meirihluta að ná svolítið ferska vinda. Það er nægur mannskapur til sem varð til þegar breytingar urðu í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þetta kemur mjög flatt upp á íbúa og virðist hafa verið mikill flýtir að ganga frá þessu. Menn hafa augljóslega gengið hratt til verks. Maður sér fólk úr öllum flokkum gagnrýna þessa ráðningu og finnst þetta mjög sérkennilegt. Gunnar er umdeildur vegna verka sinna og það er það sem ég held að bæjarbúar telji að hægt hefði verið hægt að gera betur“, sagði Bjarkey sem stödd var á Ólafsfirði í dag og bendir á að Gunnar hafi nánast samdægurs verið ráðinn í stað fráfarandi bæjarstjóra.Fyrrum sjálfstæðismenn í F-lista S-listi jafnaðarmanna og F-listi mynda meirihlutann í bæjarstjórn með fjóra fulltrúa á móti þremur frá Framsókn og Sjálfstæðisflokki. Meirihlutinn ákvað ráðningu en í F- listanum er fólk sem var áður í Sjálfstæðisflokknum fyrir norðan.Urðum að bregðast fljótt við Kristinn Kristjánsson situr í meirihlutanum fyrir F-lista. „Við stóðum náttúrlega frammi fyrir því að bæjarstjórinn sagði upp og vildi hætta strax og þá voru góð ráð dýr. Við þurftum að bregðast skjótt við og við ákváðum að finna mann sem hefur þekkingu og reynslu til að halda áfram með þau verkefni hér í stjórnsýslunni. Við þurftum þungavigtarmann til að halda áfram með verkefnin. Við erum bjartsýn og ánægð með að hafa ráðið Gunnar í þetta. Vissulega er hann umdeildur en eru ekki flestir sem taka stórar ákvarðanir umdeildir?“, spyr Kristinn sem ræddi við Stöð tvö í kvöld. Meirihlutinn er einróma um ráðninguna en bæjarstjórnarfundur verður haldinn á fimmtudag í næstu viku og þá kemur í ljóst hvernig málið verður afgreitt.Nær aldarfjórðungur í sveitarstjórn Gunnar var oddviti Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Kópavogs í 24 ár, um árabil formaður bæjarráðs og bæjarstjóri. Gunnar var þingmaður Sjálfstæðisflokksins, frá 1999 til 2006 í Reykjaneskjördæmi, seinna Suðvesturkjördæmi. Fjallabyggð er tvö þúsund manna sveitarfélag eftir sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Gunnar sem gegnir ekki lengur trúnaðarstörfum fyrir Kópavogsbæ mun taka við strax næstu mánaðarmót og segir tilboðið hafa borið brátt að.
Mest lesið Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Innlent Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Innlent „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Erlent Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Innlent Segir uppspuna að Mogginn sé að hætta að koma út á prenti Innlent Tveir starfsmenn á heilsugæslu með berklasmit Innlent Fleiri fréttir Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Grafalvarlegt að berklasmit hafi greinst Kvörtunum rigndi yfir umboðsmann í fyrra Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Regína lætur staðar numið í Mosó Kerfið mikið breytt frá því að Barnaverndarstofa var lögð niður „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Forstjóri Intuens svarar fyrir sig og Bláfjöll lifna við Tveir starfsmenn á heilsugæslu með berklasmit Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Segir uppspuna að Mogginn sé að hætta að koma út á prenti Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Opið í Bláfjöllum í dag Ásmundur Einar yfir strákanefnd dómsmálaráðherra Bráðamóttakan megi ekki vera „forarpyttur sýkinga og hættu“ Meirihluti vill frekar tvö stutt vetrarfrí en eitt lengra Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök „Áratuga afturför“ og frost í greininni Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Jötunheimar á Selfossi verður tólf deilda leikskóli „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Sérsveitin kölluð út en engum skotum reyndist hleypt af Söguleg handtaka og umdeildir skannar Brotist inn í leikskóla í Reykjavík Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Sjá meira