Lá meðvitundarlaus eftir líkamsárás á Laugavegi Birgir Olgeirsson skrifar 6. júní 2015 10:00 Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Vísir/Anton
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast síðastliðinn hálfa sólarhringinn. Um kvöldmatarleytið barst tilkynning um umferðarslys á Miklubraut við Lönguhlíð þar sem ekið hafði verið á gangandi vegfaranda. Var hann fluttur á slysadeild í sjúkrabifreið og fann fyrir eymslum í vinstri olnboga, hægri úlnlið og fingrum eftir að hafa fallið í götuna. Á þriðja tímanum í nótt var ungur maður handtekinn á Miklubraut við Hlíðarhverfi þar sem hann var að ganga fyrir bifreiðar. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að maðurinn var í mjög annarlegu ástandi og var hann vistaður í fangageymslu lögreglunnar meðan ástand hans lagast. Skömmu síðar barst tilkynning um eld í vélsmiðju við Reykjavíkurveg en eldurinn reyndist vera í stól sem stóð við húsið og var vegfarandi búinn að draga stólinn frá húsinu. Var slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað til sem tryggði vettvanginn. Þegar klukkuna vantaði 9 mínútur í þrjú í nótt var maður í mjög annarlegu ástandi handtekinn eftir átök við dyraverði við veitingahús í miðborginni. Var hann vistaður í fangageymslu lögreglu meðan ástand hans lagast. Á fjórða tímanum var kona handtekin við veitingahús í Kópavogi grunuð um líkamsárás. Konan var ölvuð og vistuð í fangageymslu meðan ástand hennar lagast. Á fimmta tímanum var tilkynnt um líkamsárás við Laugaveg. Þar hafði maður verið sleginn í andlitið og var hann meðvitundarlaus og blæðing úr höfði er lögreglumenn komu að. Lögreglan segir árásaraðila hafa hlaupið af vettvangi en sá slasaði var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum slasaðist maðurinn ekki alvarlega.
Mest lesið „Það er erfitt að setja sig í hermannagalla í litlu sveitarfélagi” Innlent Munu leggja fram vísindalegar sannanir fyrir því að Brigitte sé líffræðilega kona Erlent Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem einangra sig félagslega Innlent Óttast að áætlanir ráðherra muni fækka leigubílstjórum Innlent Fundu Guð í App store Erlent Helmingur nýrra íbúða óseldur í yfir 200 daga Innlent Eiga eftir að ráða tólf starfsmenn svo hægt sé að opna allar deildir Innlent Segja áform ráðherra grafa undan þjónustu Innlent Nýr kókaínkóngur í Mexíkó Erlent Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Innlent Fleiri fréttir „Það er erfitt að setja sig í hermannagalla í litlu sveitarfélagi” Helmingur nýrra íbúða óseldur í yfir 200 daga Ógnaði öðrum með skærum 3,6 stiga skjálfti mældist í Vatnajökli Sumarfríið allt of langt fyrir þau börn sem einangra sig félagslega Segja áform ráðherra grafa undan þjónustu Óttast að áætlanir ráðherra muni fækka leigubílstjórum Ekki eigi að stjórna borginni út frá „pólitískri kreddu“ Eiga eftir að ráða tólf starfsmenn svo hægt sé að opna allar deildir Skorast ekki undan ábyrgð vilji flokksmenn nýjan oddvita Nýburar fæðast í nikótínfráhvörfum Skipulagsbreytingar á framhaldsskólastigi í vændum Mæður sem taka í vörina á meðgöngu og missáttir leigubílstjórar Björn strax hættur í íþróttaráði: „Þetta var bara prinsippmál“ SUS gefur fundarmönnum bol í anda Charlies Kirk Eins og löglærður forstjóri spítala væri að skera upp sjúklinga Aðalsteinn volgur og Björg orðuð við oddvitann Eldur í ruslageymslu á Selfossi Segist hafa flækst í umfangsmikið fíkniefnamál fyrir hreina tilviljun Annar oddviti L-listans á Akureyri hættir í bæjarstjórn Ók á fimm til sex kyrrstæða bíla Næsta skref að tryggja að próf leigubílstjóra verði alfarið á íslensku „Fólk hefur hætt eða nánast verið bolað úr starfi síðan hún tók við“ Tilkynntur til lögreglu Flóamenn taka fálega í þreifingar Árborgara Óveðurský yfir Sólheimum og deilt á ríkisendurskoðanda Meirihluti vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri Táningar reka veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum Sjá meira