Bjóða Íslendingum að frysta fituna burt Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 30. desember 2015 07:00 "Þær fitufrumur sem við höfum í líkamanum fjölga sér ekki, þær stækka í ummáli þegar við fitnum sem gerir fitufrystingu að fullkomnari lausn til að losa sig við erfiða fitu,“ segir á fitufrysting.is. Nordic photos/Getty
Fyrirtækið Reykjavik Skin býður upp á fitufrystingu til þess að minnka fitu og ummál líkamans. Fyrirtækið er til húsa í Læknastöðinni Lífsteini, Álftamýri 1-5. Í upphaflegri frétt var greint ranglega frá því að Magnús Kolbeinsson skurðlæknir væri skráður fyrir rekstri læknastöðvarinnar. Það er rangt. Rekstur Lífsteins er í höndum Fasteignafélags Álftamýrar. Magnús rekur skurðstofurekstur í húsinu en tengist ekki að nokkru leyti fyrirhugaðri þjónustu í húsinu og vissi ekki af henni fyrr en umfjöllun birtist í Fréttablaðinu. „Við sinnum fyrst og fremst laseraðgerðum við æðahnútum og gerum engar fituminnkunaraðgerðir. Höfum aldrei gert og munum aldrei gera. Við vitum ekki til þess að fitufrysting virki á mannslíkamann.“ Á heimasíðu fyrirtækisins, fitufrysting.com, eru engar upplýsingar um hverjir standa á bak við framboð þessarar þjónustu en vísað á símanúmer Lífsteins læknastöðvar. Frá Facebook síðu fyrirtækisins bárust þau skilaboð við eftirspurn að fyrirtækið væri í eigu erlendra aðila. „Ég sé bara um svör varðandi bókanir því miður, það er erlent félag sem á Reykjavik Skin ég skal senda á þann sem málið varðar fyrirspurn þína og það verður þá haft samband við þig.“ Engar upplýsingar um eignarhaldið hafa borist enn. Á heimasíðunni er að finna upplýsingar um tæknina sem er sögð ný og einstök. Tækni sem beitir kælingu til þess að frysta og útrýma óvelkomnum fitufrumum án skurðaðgerðar og án bataferlis. Aðferðin er auglýst sem hættulaus, áhrifarík og varanleg leið til þess að minnka fitu og ummál líkamans. Nánar tiltekið er aðferðinni lýst svona á heimasíðu fyrirtækisins: „Frumur líkamans deyja við kulda, og fitufrumur nánar tiltekið við 2,8 gráður, búnaðurinn okkar einblínir eingöngu á fitu á tilteknu svæði og fer bara niður í þann kulda sem til þarf og er því húðin ekki í neinni hættu, við notum himnu sem er sett á húðina til að vernda hana enn frekar. Fitufrumurnar frjósa og þær deyja, líkaminn losar sig við þær náttúrulega og meðferðin er því varanleg. Þær fitufrumur sem við höfum í líkamanum fjölga sér ekki, þær stækka í ummáli þegar við fitnum sem gerir fitufrystingu að fullkomnari lausn til að losa sig við erfiða fitu.“ Á heimasíðunni kemur fram að Reykjavik Skin muni nota sama búnað og stærsta keðja Bretlands sem starfi í fjórtán útibúum víðsvegar um Bretland. Um sé að ræða öruggasta og áhrifaríkasta búnað sem fæst og öllum meðferðum sé lokið með öflugum hljóðbylgjum sem brjóti upp frumurnar sem eru frosnar og geri frystinguna helmingi áhrifaríkari. Ekki kemur fram hvaða keðju um er að ræða í Bretlandi en nokkur umræða hefur verið um meðferðina í breskum fjölmiðlum. Í umfjöllun Daily Mail í októbermánuði 2014 er bæði greint frá árangri meðferðarinnar og því að læknar í Bretlandi hafi tilkynnt um sjúklinga sem hafi farið í meðferðina hjá einstaklingum án tilskilinna leyfa og kunnáttu og fengið ör og brunasár. Á heimasíðunni kemur einnig fram að aðferðin sé ein mest selda fegrunarmeðferð í Bandaríkjunum og hún hafi verið til síðan árið 2012. Aðferðin var samþykkt af bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu, FDA, árið 2010. Birgir Jakobsson landlæknir hefur ekki heyrt um þessa nýju starfsemi. „Nei, ég hef ekkert heyrt um það,“ segir hann spurður um það hvort hann hafi skipt sér af starfseminni.*Athygli lesenda er vakin á mistökum sem gerð voru við vinnslu fréttar sem birtist í morgun í Fréttablaðinu sem hafa nú verið leiðrétt. Í fyrri frétt var sagt að Magnús Kolbeinson sæi um rekstur Lífsteins. Það er rangt. Rekstur Lífsteins er í höndum Fasteignafélags Álftamýrar. Það skal tekið skýrt fram að Magnús rekur ekki læknastöðina Lífstein. Hann rekur skurðstofurekstur í húsinu en tengist ekki að nokkru leyti fyrirhugaðri þjónustu í húsinu og vissi ekki af henni fyrr en umfjöllun birtist.
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Vill afnema sektir við vændiskaupum Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Fleiri fréttir Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Sjá meira