Brutu gegn fanga með því að senda hann á Litla Hraun vegna Facebook-notkunar Birgir Olgeirsson skrifar 8. júní 2015 19:33 Páll Winkel fangelsismálastjóri. Vísir/GVA
Innanríkisráðuneytið hefur fellt ákvörðun fangelsismálastofnunar úr gildi sem ákvað um miðjan maí síðastliðinn að senda fanga um tvítugt af Kvíabryggju yfir á Litla Hraun fyrir tölvubrot. Fangelsismálastofnun tók þessa ákvörðun eftir að hafa borist afrit af Facebook-samskiptum sem fanginn hafði átti í. Fanginn afplánar þriggja ára dóm en lögmaður hans, Guðmundur St. Ragnarsson, kærði þessa ákvörðun fangelsismálastofnunar til innanríkisráðuneytisins. Hann segir innanríkisráðuneytið hafa metið það svo að þessi ákvörðun að flytja fangann af Kvíabryggju á Litla Hraun hefði brotið gegn meðalhófi. Guðmundur segir í samtali við Vísi að unnt hefði verið að láta fangann sæta viðurlögum á Kvíabryggju fyrir þetta tölvubrot í stað þess að grípa til þess að flytja hann í lokað fangelsi. „Þeir sem eru í lokuðum fangelsum og verða uppvísir af tölvubroti, þeir eru þá látnir sæta tölvubanni í einn mánuð sem er mun vægara heldur en hitt og það hefði mögulega verið nær að grípa til þannig aðgerða gagnvart þessum pilti.“Allt fullt á Kvíabryggju Þrátt fyrir að innanríkisráðuneytið hafi úrskurðað að þessi ákvörðun fangelsismálastofnunar hefði farið gegn meðalhófi stjórnsýslulaga og hún felld úr gildi hefur fanginn enn ekki verið fluttur af Litla Hrauni á Kvíabryggju. Innanríkisráðuneytið birti úrskurð sinn á föstudaginn en Guðmundur segist hafa fengið þau svör að ekki væri pláss á Kvíabryggju fyrir fangann og því ekki hægt að flytja hann af Litla Hrauni. Guðmundur hefur mótmælt þessari afstöðu. „Ráðuneytið er búið að taka þessa ákvörðun og úrskurða um það að þetta sé ólögmætt, þá er frekar einkennilegt að það sé ekki hægt að koma hinu ólögmæta ástandi í löglegt út af plássleysi. Það er einhver sem tekur hans pláss væntanlega.“ „Um leið og losnar þá verður hann fluttur,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri í samtali við Vísi um málið. Hann gat ekki sagt til hvenær fanginn verður fluttur. Fangelsismálastofnun barst þessi úrskurður frá ráðuneytinu eftir lokun á föstudag og sé verið að vinna í því að finna lausn. „Við erum bara að vinna í því núna, hvort það þurfi að flytja einhvern annan. Fanginn verður fluttur um leið og pláss er laust. Við fyllum öll pláss býsna hratt.“„Svona virkar þetta stjórnsýslukerfi sem betur fer“ Hann segir þennan úrskurð til marks um að kerfið virkar. „Okkar ákvarðanir í fangelsismálastofnun eru kæranlegar upp í innanríkisráðuneytið og við verðum að laga okkur eftir því og fara að þeim fyrirmælum sem við fáum úr innanríkisráðuneytinu og gerum það auðvitað og munum taka mið að því framvegis. Svo er aukaatriði hvort ég sé sammála þessum niðurstöðum. Svona virkar þetta stjórnsýslukerfi sem betur fer.“
Tengdar fréttir Sendur af Kvíabryggju á Litla Hraun vegna Facebook-notkunar Ungur fangi, sem var í afplánun á Kvíabryggju, braut reglur um netnotkun og var sendur umsvifalaust í lokað fangelsi. 27. maí 2015 15:54 Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Innlent Fleiri fréttir Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Sjá meira
Sendur af Kvíabryggju á Litla Hraun vegna Facebook-notkunar Ungur fangi, sem var í afplánun á Kvíabryggju, braut reglur um netnotkun og var sendur umsvifalaust í lokað fangelsi. 27. maí 2015 15:54