Leitað að Reykvíkingi ársins 2015 Jóhann Óli Eiðsson skrifar 4. júní 2015 13:49 Í fyrra fengu bræðurnir Kristján og Gunnar Jónassynir verðlaunin. vísir/gva
Borgarstjóri óskar eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking ársins. Til greina koma þeir einstaklingar, sem hafa með háttsemi sinni eða atferli, verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Verðlaunin voru afhent í fyrsta skipti árið 2011 en þá féllu þau í skaut Gunnlaugs Sigurðssonar. Theodóra Guðrún Rafnsdóttir hlaut þáu ári síðar og Ólafur Ólafsson árið 2013. Í fyrra fengu bræðurnir Kristján og Gunnar Jónassynir verðlaunin. Í tilkynningunni segir að Reykvíkingur ársins gæti t.d. verið einhver sem heldur borginni hreinni með því að tína upp rusl á víðavangi, hefur haft jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt eða samfélag með umhyggju og gert Reykjavíkurborg eða Reykvíkingum gott á undanförnum árum. „Það eru fjölmargir einstaklingar sem vinna óeigingjarnt starf í þágu samborgara sinna á degi hverjum. Allir þekkja einhvern eldhuga í sínu hverfi sem með náungakærleik eða öðru framlagi til samfélagsins hefur gert Reykjavík betri. Ég hvet alla til að senda inn tilnefningu en þau sem hafa hlotið þennan titil síðastliðin fjögur ár eru sannkallað fyrirmyndarfólk, “ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Reykvíkingur ársins hlýtur vegleg verðlaun frá Reykjavíkurborg, m.a. boð frá borgarstjóra um að opna Elliðaárnar. Auk þess fær hann árskort í sundlaugar ÍTR, árskort í Fjölskyldu og húsdýragarðinn, Menningarkortið til eins árs og leikhúsmiða í Borgarleikhúsið. Ábendingar um einstaklinga eru vel þegnar og ber að senda þær inn ásamt rökstuðningi á netfangið hugmynd@reykjavik.is eða bréflega til skrifstofu borgarstjóra merkt Reykvíkingur ársins fyrir 14. júní 2015.
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Sjá meira