Litlir skammtar geta reynst lífshættulegir Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 4. júní 2015 19:22
Sautján ára stúlka lést eftir að hún tók inn eina og hálfa e-töflu á aðfararnótt sunnudagsins. Læknir segir fólk aldrei óhult þótt það taki inn litla skammta af efninu, en frá aldamótum er hægt að rekja dauðsföll sex íslenskra ungmenna til neyslu e-taflna og skyldra efna,sem vinsæl eru í skemmtanalífinu. Ingibjörg Melkorka Ásgeirsdóttir var nýlega orðin sautján ára gömul þegar hún lést í kjölfar þess að hafa neytt e-töflu aðfaranótt síðastliðins sunnudags. Ingibjörg lætur eftir sig foreldra, fjórar systur og einn bróður. Bænastund verður í Akraneskirkju á morgun, föstudaginn 5. júní klukkan 17:30. Ingibjörg Melkorka tók inn eina og hálfa E-töflu. Eftir það sofnaði hún og vaknaði ekki aftur. Hún var flutt á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þar sem hún var úrskurðuð látin aðfararnótt þriðjudagsins 2. júní. Aðstandendur Ingibjargar Melkorku vilja koma því á framfæri að þetta var í fyrsta og eina skipti sem vitað er að hún hafi neytt þessara eiturefna sem E-pillur eru. Eitt skipti getur því verið nóg til að hafa þessar hörmulegu afleiðingar. „Von okkar er að þessum skilaboðum verði komið út í samfélagið sem víðast, öðrum til aðvörunar um þá dauðans alvöru sem neysla vímuefna getur haft,“ segir í yfirlýsingu frá aðstandendum. Ungmenni telja efnið jafnan skaðlaust, Svanur Sigurbjörnsson sérfræðingur í lyflækningum segir frá lífshættuleg einkennum ofskömmtunar en mörg þeirra geta farið framhjá jafnvel fróðasta fólki. „Lífshættuleg einkenni þau geta verið þónokkur, það getur komið fram í krömpum, smá saman getur viðkomandi ofhitað og misst mikinn vökva gegnum svita og síðan getur hreinlega orðið ýmis einkenni út frá taugakerfi, ofskynjanir, rugl, fólk getur skaðað sig þannig út frá skertri dómgreind, síðan alls konar einkenni frá æðakerfi, hjartaáföll, heilablóðföll og lokun á líffærum. Æðarnar lokast og nýrun og fleiri lífsnauðsynleg líffæri hætta að starfa.“ Svanur varar fólk við því að litlir skammtar geti jafnvel reynst lífshættulegir. „Lítil manneskja og létt með lítinn vöðvamassa, hún getur verið að taka einhvern milligrammafjölda af efni sem fyrir stærri manneskju væri innan hættumarka. Svo spilar inn í líka talsvert vökvaástand, líkamsáreynsla, svo er mismunandi milli einstaklinga hvernig lifrin vinnur úr lyfjum. Það getur því líka verið breytilegt á milli manneskja af sömu stærð.“
Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Sjá meira