Beint úr moldarkofanum í 100% bílalán Heimir Már Pétursson skrifar 9. júní 2015 19:15 Farið er að hilla undir samkomulag um þinglok. Breytingartillaga við virkjanamálin ræður miklu um lengd sumarþings. vísir/vilhelm
Þingflokksformaður Pírata segir Íslendinga nýskriðna út úr fjárhagslegum moldarkofum og því sé ástæða til að óttast framtíðina þegar gjaldeyrishöftum verði aflétt. Farið er að hilla undir samkomulag um þinglok. Almenn samstaða virðist ríkja um haftafrumvörp fjármálaráðherra en það verða stærstu málin sem afgreidd verða á þinginu fyrir sumarleyfi. Hins vegar er enn algerlega ósamið um önnur mál fyrir þinglok. Þetta var augljóst í störfum þingsins í dag þar sem stjórnarandstaðan ræddi frumvarp fjármálaráðherra um ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016 til 2019 mjög ítarlega annan eða þriðja daginn í röð án þess að margir sýndu þeirri umræðu mikinn áhuga. Haftafrumvörpin koma til umræðu á á morgun en þingflokksformaður Pírata lýsti hins vegar áhyggjum sínum af því sem tæki við þegar búið væri að samþykkja haftafrumvörpin sem hann sagðist annars hlakka til að ræða. „Vegna þess að þegar við erum búin að losa um fjármagnshöftin, sem allir eru sammála um að þurfi að gera, þá óttast ég að við horfum aftur fram á tíma ákveðinnar óráðdeildar. Ég vil meina að Íslendingar séu eiginlega nýskriðnir úr fjárhagslegum torfkofum, að við sem þjóð þekkjum fjármál mjög illa,“ sagði Helgi Hrafn. Það ætti jafnvel við þingmenn, almening og bankamenn. Nú væru flestar bílasölur t.d. farnar að bjóða upp á 100 prósent bílalán. „Sem hljómar einhvern veginn æðislega vel. Að fá lánaðan heilan bíl. Það er ekki endilega góð hugmynd. Ég óttast það að Íslendingar fari aftur að líta á lán sem ókeypis peninga og atkvæðaseðla sem lottómiða. Ég óttast það mjög og vara við því,“ sagði Helgi Hrafn. Breytingatillögurnar við þingsályktun Sigurðar Inga Jóhannssonar fyrrverandi umhverfisráðherra um virkjanamál munu ráða miklu um þinglokin. Ekki liggur fyrir hvort stjórnarflokkarnir ætli sér að halda því máli til streitu óbreyttu. Síðdegis átti að boða til fundar forystumanna flokkanna til að reyna að ná samkomulagi um hvaða mál verða afgreidd á þessu þingi.
Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Fleiri fréttir Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Sjá meira