89 svöruðu kalli RÚV eftir snillingi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. júní 2015 13:30 RÚV ætlar að bæta þjónustu við börnin til muna. visir/gva
RÚV er á lokametrunum með að ganga frá ráðningu á starfsmanni sem á að efla þjónustu við börn og ungmenni. Auglýst var eftir snillingi til að stýra KrakkaRÚV, nýjum vef ásamt nýrri stafrænni barnaútvarpsrás, og svöruðu 89 kallinu. Þrjátíu þeirra drógu umsókn sína til baka þegar óskað var eftir lista yfir umsækjendur. Eftir standa 45 konur og 14 karlar áhugasöm um stöðuna. Hildur Harðardóttir, framkvæmdastjóri samskipta-, þróunar- og mannauðssviðs hjá RÚV, segir að hópur þeirra sem sótti um stöðuna hafi verið afar fjölbreytur og góður. Hluti þeirra hafi verið boðaður í viðtal og skriflegt próf en svo hafi fjórir verið boðaðir í Efstaleitið á nýjan leik þar sem þeir kynntu hugmyndir sínar og gengust undir persónuleikapróf. Umsóknarferlið hefur verið unnið í samvinnu við Capacent.Leiða faghóp um barnaþjónustu Í auglýsingunni fyrir stöðu verkefnastjóra KrakkaRÚV, fyrrnefnds snillings, kemur fram að verkefnastjórinn eigi að hafa umsjón með þjónustu RÚV við börn og ungmenni þvert á miðla. Hann eigi að leiða faghóp um barnaþjónustu og samhæfa innkaup, gerð og miðlun barnaefnis. Auk þess verður hann tengiliður við utanaðkomandi aðila á þessu sviði. Hann mun eiga náið samstarf við dagskrárstjóra allra miðla auk þess að ljúka við mótun og ritstýra nýja vefnum og sjá um nýju stafrænu barnaútvarpsrásina. Verkefnastjórinn vinnur efni fyrir vef og útvarp í samstarfi við aðra starfsmenn. Samhliða aukinnar þjónustu við börnin ætlar RÚV að efla þjónustu við landsbyggðina. Í tengslum við það vekur RÚV sérstaka athygli á að ávallt sér fúslega tekið við tillögum og tilboðum um dagskárefni hvaðan sem er af landinu. Er fólk um allt land hvatt til að senda inn tillögur en RÚV ætlar að leita leiða til að framleiða efni sem víðast á landinu.Listinn Listann yfir umsækjendur, þ.e. þá 59 sem ekki drógu umsóknina til baka þegar ljóst var að listinn yrði gerður opinber, má sjá hér að neðan: Andri Már Sigurðsson, verkefnastjóri Andri Ómarsson, verkefnastjóri Árdís Ýr Pétursdóttir, kvikmynda- og sjónvarpsfræðingur Ása Kristín Einarsdóttir, forstöðumaður í félagsmiðstöð Ásdís Björg Jóhannesdóttir Áslaug Baldursdóttir, kennari og menningarmiðlari Ásta Björg Björgvinsdóttir, tónmenntakennari Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, blaðamaður, MPM Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, leikkona og leiklistarkennari Björg Jónsdóttir, MPM Brynhildur Björnsdóttir, barnaefnisdagskrárgerðarkona Brynjar Birgisson, kvikmyndagerðarmaður Einar Karl Birgisson, svæðisstjóri Latabæjar Elfa Sif Logadóttir, ráðgjafi Elín Björk Einarsdóttir, deildarstjóri á leikskóla Elva Hjartardóttir, RA officer Erna Jóhannesdóttir, kennari Guðrún Edda Einarsdóttir, hönnuður Gunnar Ásgeirsson Heimir Björnsson, framhaldsskólakennari og tónlistarmaður Helen Símonardóttir, B.Ed, grunnskólakennarafræði og MPM, meistarnám í verkefnastjórnun Helena Guðrún Þingholt, vídeólistakona og leikstýra Helga Ágústsdóttir, kennsluráðgjafi Helga Eir Gunnlaugsdóttir Herdís Stephensen Hildur Loftsdóttir Hugrún Margrét Óladóttir, leikkona Iðunn Haraldsdóttir, þjóðfræðingur og leiðbeinandi á leikskóla Inga Rún Sigurðardóttir, blaðamaður hjá Sunnudagsblaði Morgunblaðsins Ingunn Eyþórsdóttir, upplýsinga- og vefstjóri Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands Íris Arnardóttir Ísgerður Elva Gunnarsdóttir, verkefnastjóri Jóhanna Kristín Gísladóttir Jóna Ottesen, kvikmyndaframleiðsla Karólína Stefánsdóttir Kristín Björk Jónsdóttir, mannfræðingur Kristín Erna Arnardóttir, kvikmynda - og verkefnastjóri Kristlaug María Sigurðardóttir, rithöfundur og framleiðandi Lára Garðarsdóttir Lilja Katrín Gunnarsdóttir, leik- og fjölmiðlakona Lísa María Kristjánsdóttir, grunnskólakennari og náms- og starfsráðgjafi María Margrét Jóhannsdóttir, blaðamaður Nói Kristinsson, uppeldis- og menntunarfræðingur Óskar Þór Þráinsson, upplýsingafræðingur Ragnar Eyþórsson, framleiðandi Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir, grunnskólakennari Róbert Halbergsson, grafískur hönnuður Sara Hrund Signýjardóttir, músíkmeðferðarfræðingur Sigríður Ásta Árnadóttir, myndlistarmaður og ritstjóri Sigrún Edda Elíasdóttir, félagsfræðingur og nemi í meistaranámi í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum Sigrún Huld Skúladóttir Sigyn Blöndal Sindri Þórarinsson, framkvæmdastjóri Snorri Kristjánsson, fjölmiðlafræðingur Steinar Þór Ólafsson, íþróttafræðingur Thelma Dögg Haraldsdóttir, viðburðarstjórnandi Viktor Már Bjarnason, leikari, menningarmiðlari og kennari Víðir Örn Guðmundsson Þórunn Óskarsdóttir, leikskólakennari
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Sjá meira