Lagt hald á 43 ólöglegar lyfjasendingar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. júní 2015 09:35 Tollhúsið við Tryggvagötu. Vísir/Hörður
Rúmlega fjörutíu mál komu upp hér á landi fyrr í mánuðinum í alþjóðlegri aðgerð gegn fölsuðum og ólöglegum lyfjum sem seld eru á netinu. Embætti Tollstjóra og Lyfjastofnun tóku sameiginlega þátt í aðgerðinni og nutu atbeina ríkislögreglustjóra og tengslaskrifstofu embættissins hjá Europol við framkvæmd verkefnisins hér. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tollstjóra. Í aðgerðinni, „Pangea VIII“ sem var á vegum WCO (World Customs Organisation), Europol og Interpol, var lagt hald á samtals 43 sendingar. Aðallega var um að ræða nikótínvökva og var heildamagnið á fimmta lítra. Í tengslum við aðgerðina var jafnframt lagt hald á 28 sendingar með fæðubótarefnum sem innihéldu lyfjavirk efni eða jurtir með lyfjavirkni. Þær höfðu m.a. að geyma örvandi efni, hormóna, grenningarefni og „detoxunarefni“. Samtals tóku 115 lönd þátt í aðgerðinni, sem er sú stærsta sinnar tegundar til þessa. Markmiðið var að kortleggja skipulagða glæpastarfsemi að baki fölsuðum og ólöglegum lyfum á netinu og voru alls 156 handteknir. Haldlögð voru ólögleg og hættuleg lyf að andvirði 81 milljón Bandaríkjadala eða sem svarar til tæplega ellefu milljarða íslenskra króna. Þá var 2.414 vefsíðum sem buðu slíkan varning til sölu lokað. Tollstjóri segir frekari upplýsingar ekki verða gerðar opinberar þar sem málin séu í vinnslu.
Mest lesið Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Innlent Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Erlent Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Innlent Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Innlent Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna í Eyjum Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Fleiri fréttir Bílar bíta grasið við bakka Vesturbæjarlaugar Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna í Eyjum Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Sjá meira