Innlent

Fimmtán milljónir í kynjarannsóknir

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá Druslugöngunni í fyrra. Tilgangur Jafnréttissjóðs er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis.
Frá Druslugöngunni í fyrra. Tilgangur Jafnréttissjóðs er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis. vísir/andri marinó
Jafnréttissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum fyrir árið 2015 en tilgangur sjóðsins er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis.

Í frétt á vef Jafnréttisstofu kemur fram að sjóðurinn hafi 15 milljónir til að úthluta styrkjum í ár og er miðað við að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm. Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda og hvorki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið né meistararitgerða.

Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti í lok sunnudagsins 23. ágúst 2015 og verður úthlutað úr sjóðnum á degi Sameinuðu þjóðanna, þann 24. október 2015.

Vakin er athygli á því að umsækjendum er gert að sækja rafrænt um á eyðublaðavef ráðuneytanna en nánari upplýsingar má nálgast hér.


Tengdar fréttir

Fjölgun kvenleiðtoga eykur hagvöxt

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir mikilvægt að virkja krafta kvenna. Það sé ekki bara siðferðilegt eða pólitískt mál, heldur auki hagvöxt. Fréttablaðið ræddi við hana vegna ráðstefnunnar Women Empowerment sem nú stendur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×