Jón Gnarr: Sorphirða í Reykjavík óhagkvæm og óþarflega dýr sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 21. mars 2015 12:01 vísir/ernir
Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, segir í nýjum pistli sínum í Fréttablaðinu í dag að sorphirða í Reykjavík og víða á Íslandi sé óhagkvæm og óþarflega dýr. Hún sé illa skipulögð og hugmyndafræðin að baki henni röng. Hann líkir Íslendingum við ábyrgðalaus börn sem fleygi frá sér rusli og telji það á ábyrgð annarra að þrífa það upp. Tilefni pistilsins, sem ber yfirskriftina Heimspeki lúxus-sósíalismans, er sorphirða í Houston í Bandaríkjunum, þar sem Jón nú dvelst. Þar eru rusl tæmd einu sinni í viku og fer hver og einn með sína ruslafötu út á götu kvöldinu áður en hana á að tæma. Sé það ekki gert eru ruslaföturnar ekki tæmdar. „Á meðan flest siðmenntuð samfélög virðast vinna að því að auka sjálfsábyrgð íbúa á sem flestum sviðum, virðumst við vera annað hvort langt á eftir og virðumst ekki skilja þessa einföldu hugmyndafræði, eða erum að fara algjörlega í hina áttina. Okkur finnst í svo mörgu að hin svokölluðu yfirvöld eigi að sjá um hlutina fyrir okkur,“ skrifar Jón Gnarr í pistlinum. „Þeim ber skylda til að þrífa upp draslið sem við hendum á götuna, vera með her manns á launum við að sækja draslið okkar upp að dyrum og taka meira að segja jólatrén þegar jólin eru búin,“ bætir hann við. Jón segir það stórmerkilega þversögn að þeir pólitísku flokkar sem kenni sig við sjálfstæði og einstaklingsábyrgð séu þeir sem reki hvað hatrammastan áróður fyrir slíkum munaðarsósíalisma „eins og hin árlega uppákoma borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins þegar þeir fara um borgina, ásamt blaðamanni Morgunblaðsins, og hirða upp jólatré sem fólk hefur hent út um gluggann“. Hann segir að breyta þurfi þessari hugsun. Hún sé dýr í rekstri og íbúarnir verði eins og ofdekraður unglingur sem kann ekki á þvottavél. Pistil Jóns má lesa í heild hér.
Tengdar fréttir Gosi Tilvera mín hefur lengi verið mér hugleikin. Hver er ég? Hvaðan kem ég? Hvert fer ég? Hef ég sál eða anda? Ég hef lesið aragrúa bóka um andleg málefni, kynnt mér alls konar hugleiðslur og trúarrit og kenningar helstu heimspekinga. 7. mars 2015 07:00 Heimspeki lúxus-sósíalismans Þegar ég var barn þurfti ég aldrei að þrífa eftir mig. Ég þvoði ekki upp diska eða glös. Ég þvoði ekki af mér fötin. Ég henti þeim bara á gólfið þar sem ég fór úr þeim, svo birtust þau nokkrum dögum síðar hrein og samanbrotin í fataskápnum. 21. mars 2015 07:00 Nennir ekki freka karlinum: Býður sig ekki fram til forseta Jón Gnarr, skemmtikraftur og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík, ætlar ekki að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands á næsta ári. 14. mars 2015 07:00 Hinn grái hversdagsleiki Þegar Evrópusambandið ber á góma verða alltaf hróp og köll. Það er furðulegt sökum þess, að um er að tefla fyrirbæri sem er alltumlykjandi. 18. mars 2015 12:00 Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira
Gosi Tilvera mín hefur lengi verið mér hugleikin. Hver er ég? Hvaðan kem ég? Hvert fer ég? Hef ég sál eða anda? Ég hef lesið aragrúa bóka um andleg málefni, kynnt mér alls konar hugleiðslur og trúarrit og kenningar helstu heimspekinga. 7. mars 2015 07:00
Heimspeki lúxus-sósíalismans Þegar ég var barn þurfti ég aldrei að þrífa eftir mig. Ég þvoði ekki upp diska eða glös. Ég þvoði ekki af mér fötin. Ég henti þeim bara á gólfið þar sem ég fór úr þeim, svo birtust þau nokkrum dögum síðar hrein og samanbrotin í fataskápnum. 21. mars 2015 07:00
Nennir ekki freka karlinum: Býður sig ekki fram til forseta Jón Gnarr, skemmtikraftur og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík, ætlar ekki að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands á næsta ári. 14. mars 2015 07:00
Hinn grái hversdagsleiki Þegar Evrópusambandið ber á góma verða alltaf hróp og köll. Það er furðulegt sökum þess, að um er að tefla fyrirbæri sem er alltumlykjandi. 18. mars 2015 12:00