Litlir flokkar í lykilstöðu Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 4. apríl 2015 07:00 Ómögulegt er að spá um það hver næsti ábúandi í númer 10 verður. Vísir/AFP
Kosningabarátta fyrir þingkosningarnar í Bretlandi komst á flug í sjónvarpskappræðum leiðtoga stjórnmálaflokkanna síðastliðinn fimmtudag. Kappræðurnar voru einstakar í breskri stjórnmálasögu fyrir þær sakir að þetta er í annað sinn sem kappræðum er sjónvarpað í Bretlandi og í fyrsta sinn tóku leiðtogar sjö stjórnmálaflokka þátt. Hefðin er sú að stóru flokkarnir tveir, Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn, taka einir þátt í slíkum viðburðum en nærvera fulltrúa hinna flokkanna þykir vera til marks um það að stóru flokkarnir séu að missa tök sín á breskum stjórnmálum.Ed Miliband, leiðtogi Verkamannaflokksins, hefur útilokað samstarf við Skoska þjóðarflokkinn.Vísir/AFPKosningarnar þykja því snúast að miklu leyti um árangur minni flokkanna og möguleika þeirra á að mynda ríkisstjórn með stóru flokkunum eða verja þá falli. Samkvæmt öllum helstu kosningaspám þykir líklegt að enginn flokkur nái hreinum meirihluta og því eru á kreiki miklar vangaveltur um hugsanlegt stjórnarmynstur. Skoski þjóðarflokkurinn gæti óvænt haft mikil áhrif á myndun næstu ríkisstjórnar, en samkvæmt mörgum könnunum mun flokkurinn sigra í flestum kjördæmum í Skotlandi og bæta allverulega við sig þingmönnum. Ed Miliband, leiðtogi Verkamannaflokksins, hefur útilokað að mynda ríkisstjórn með Skoska þjóðarflokknum en hefur þó ekki útilokað að þiggja stuðning hans til að verja minnihlutastjórn flokks síns falli. Nicola Sturgeon, leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, tekur í svipaðan streng og Miliband og segir að það sé kappsmál fyrir þau að halda Íhaldsflokknum frá völdum en til þess myndu þau kjósa að verja stjórn Verkamannaflokksins falli.David Cameron hefur ekki útilokað samstarf við UKIP en leiðtogi þess flokks, Nigel Farage, segir að krafa verði gerð um þjóðaratkvæði um veru Bretlands í Evrópusambandinu.Vísir/EPAFylgi við ríkisstjórn Íhaldsflokksins og Frjálslyndra demókrata stendur höllum fæti vegna fylgishruns Frjálslyndra eftir góðan árangur þeirra í þingkosningunum 2010. Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata, þykir ekki hafa staðið við mörg þeirra loforða sem hann varpaði fram í síðustu kosningum. Aðspurður um hugsanlega samstarfsfélaga í ríkisstjórn hefur Clegg sagt að hans fyrsta val væri að vinna áfram með Íhaldsflokknum en hann gæti líka séð fyrir sér ríkisstjórn með Verkamannaflokknum. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Íhaldsflokksins, hefur neitað að tjá sig um mögulegt stjórnarmynstur fyrr en eftir kosningar. Cameron hefur ekki útilokað samstarf við UKIP, Breska sjálfstæðisflokkinn. Nigel Farage, leiðtogi UKIP, segist geta hugsað sér að verja ríkisstjórn Íhaldsflokksins falli gegn því að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um veru Bretlands í Evrópusambandinu fyrir árslok 2015. Áður hefur Cameron lofað því að slík atkvæðagreiðsla verði haldin fyrir árslok 2017 nái flokkur hans að halda áfram í ríkisstjórn. Kosningar í Bretlandi fara fram 7. maí næstkomandi.
Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Fleiri fréttir Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Sjá meira