Óttar Proppé einn í framboði til formanns? Sveinn Arnarsson skrifar 5. september 2015 10:12 Þegar þetta er skrifað eru um 45 mínútur eftir af framboðsfrestinum og Ottar einn í framboði. Vísir/Pjetur/Valli
Óttar Proppé, þingmaður Bjartrar framtíðar, er sá eini sem skilað hefur inn framboði til formanns flokksins en ársfundur flokksins hefst nú á Ásbrú klukkan 11. Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður í Norðausturkjördæmi, verður þingflokksformaður flokksins, samkvæmt heimildum flokksins. Framboðsfrestur til formanns flokksins rennur út þegar fundur hefst. Heimildir Vísis herma að Óttar verði sjálfkjörinn sem formaður flokksins og enginn bjóði sig fram á móti honum. Þingflokkurinn hittist svo á fundi í gær og sammældist um að Brynhildur yrði þingflokksformaður á komanvi vetri í þinginu. Þar með munu Guðmundur Steingrímsson og Róbert Marshall stíga til hliðar og verða óbreyttir þingmenn. Staða Bjartrar framtíðar í könnunum upp á síðkastið hefur verið slæm og hefur flokkurinn ítrekað mælst undir fimm prósenta lágmarkinu til að ná manni kjörnum inn á þing. Heiða Kristín Helgadóttir, varaþingmaður flokksins og fyrrum aðstoðarmaður Jóns Gnarr hjá Besta flokknum í Reykjavík, opinbera svo óánægju sína með stjórn flokksins og taldi það skynsamlegast að skipta um í brúnni því staðan væri óásættanleg. Margir töldu að kominn væri tími á konu sem formann flokksins. Heiða Kristín hugsaði sig sjálf lengi um en ákvað svo að gefa ekki kosta á sér. Nöfn Brynhildar Pétursdóttur, Bjartar Ólafsdóttur og Guðlaugar Kristjánsdóttur komu því í kjölfarið upp sem mögulegir arftakar Guðmundar sem formaður. Þing verður sett í næstu viku og er verkefnið ærið fyrir flokkinn að rífa sig upp í könnunum. Samkvæmt heimildum Vísis munu þingmenn byrja snemma að vera á tánum og vera sýnilegir í þinginu til að rödd flokksins nái að heyrast sem mest á komandi þingi.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira