Íbúar á Hverfisgötu óttaslegnir Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 22. janúar 2015 09:30 Umrætt hús er bakhús, það þriðja frá Hverfisgötu. Vísir
Íbúar á Hverfisgötu eru óttaslegnir vegna þeirra atburða sem átt hafa sér stað í húsi við götuna undanfarna tvo mánuði. Karlmaður var stunginn í hjartað í nóvember og annar lést um liðna helgi. Atburðirnir áttu sér báðir stað í sama húsi við Hverfisgötu 88c þar sem nokkrar íbúðir eru í útleigu. „Þetta er fólk sem er undir áhrifum eiturlyfja og er til ófriðs. Það eru ekki læti í þeim en þau er mjög aggressív þannig að maður reynir að vera sem minnst þarna í kring,“ segir nágranni sem fréttastofa ræddi við. „Það er allt í rusli og óþrifnaði fyrir utan, þetta er farið að líta út eins og gettó,“ bætir hann við.Starfsfólk haldi sig innandyra Þá hefur starfsmönnum félagasamtakanna Veraldarvina við Hverfisgötu 88 verið ráðlagt að halda sig innandyra, því mennirnir eru sagðir hafa sýnt þeim ógnandi tilburði í tvígang hið minnsta. Því eru allar dyr læstar og fyllsta öryggis gætt.„Þetta er farið að líta út eins og gettó,“segir nágranni.vísir/ernirReynt að koma fólkinu út Ekki liggur fyrir hversu margir búa í umræddri íbúð hússins á Hverfisgötu. Samkvæmt heimildum fréttastofu rann leigusamningur út fyrir nokkrum mánuðum. Hvorki hefur gengið né rekið að koma fólkinu úr húsnæðinu og er útburður nú í ferli. Nágrannar segja lögregluna tíðan gest á heimili fólksins og það staðfestir Kristján Ólafur Guðnason, varðstjóri á Hverfisgötu. „Óreglufólk virðist hafa dvalið þarna löngum stundum, og já, við höfum haft afskipti af þeim áður,“ segir Kristján Ólafur.Sjá einnig: Tókst á ögurstundu að stöðva blæðingunaSebastian Andrzej Golab var stunginn í hjartað í 23.nóvember en þessi mynd var tekin það kvöld.vísir/þorgeir ólafssonBanameinið heilablæðing Maðurinn sem lést í íbúðinni síðastliðinn föstudag lést af völdum heilablæðingar. Kristján Ingi Kristjánsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir það þó ekki liggja fyrir hvort það hafi gerst af mannavöldum. „Við vitum ekki enn hvort hann hafi látist vegna slyss, af mannavöldum eða sjúkdóms,“ segir Kristján Ingi og bætir við að rannsókn málsins sé enn í gangi. Senn líði að lokum þess. Fimm hafa verið færð til skýrslutöku vegna málsins en krufning á manninum fór fram í gær. Þá er einn grunaður um að hafa reynt að ráða karlmanni bana hinn 23. nóvember síðastliðinn. Sebastian Andrzej Golab var stunginn í hjartað en skjót handtök lækna urðu til þess að hægt var að bjarga honum. Einn er í gæsluvarðhaldi.Sóðalegt er um að litast.vísir/ernir.Gengið er í gegnum port við hús Veraldarvina til að komast að tveimur bakhúsum. Hið aftara er þar sem mannslátið og hnífstungan áttu sér stað.vísir/ernir.
Tengdar fréttir Hnífstungan á Hverfisgötu: Hæstiréttur staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir mönnunum þremur sem grunaðir eru um að hafa stungið mann á Hverfisgötu þann 23. nóvember. 28. nóvember 2014 15:00 Átta vikur í gæsluvarðhaldi vegna hnífstunguárásar Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir karlmanni sem grunaður er um að hafa reynt að ráða Sebastian Andrzej Golab bana þann 23. nóvember síðastliðinn. 20. janúar 2015 12:33 Þakklátur fyrir að hafa lifað af hnífstungu gegnum hjartað Sebastian var stunginn í gegnum hjartað á Hverfisgötu fyrir rúmri viku. Með ótrúlegum hætti tókst að bjarga lífi hans og bati hans þykir undraverður. Hann lítur á björgunina sem annað tækifæri og ætlar að lifa lífinu með allt öðrum hætti hér eftir. 1. desember 2014 08:15 Hjartaaðgerð Tómasar á myndbandi: „Einstök upptaka“ Það þykir kraftaverki líkast að Sebastian Andrzej Golab hafi lifað af hnífsstungu á Hverfisgötu þann 23. nóvember síðastliðinn. Upptaka náðist frá aðgerðinni sjálfri kvöldið örlagaríka. 4. desember 2014 19:53 Krufning fer fram í dag vegna mannsláts við Hverfisgötu Í kjölfarið mun koma í ljós hvert framhaldið verður er varðar aðkomu lögreglu að málinu 20. janúar 2015 12:06 Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Erlent Fleiri fréttir Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Sjá meira
Hnífstungan á Hverfisgötu: Hæstiréttur staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir mönnunum þremur sem grunaðir eru um að hafa stungið mann á Hverfisgötu þann 23. nóvember. 28. nóvember 2014 15:00
Átta vikur í gæsluvarðhaldi vegna hnífstunguárásar Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir karlmanni sem grunaður er um að hafa reynt að ráða Sebastian Andrzej Golab bana þann 23. nóvember síðastliðinn. 20. janúar 2015 12:33
Þakklátur fyrir að hafa lifað af hnífstungu gegnum hjartað Sebastian var stunginn í gegnum hjartað á Hverfisgötu fyrir rúmri viku. Með ótrúlegum hætti tókst að bjarga lífi hans og bati hans þykir undraverður. Hann lítur á björgunina sem annað tækifæri og ætlar að lifa lífinu með allt öðrum hætti hér eftir. 1. desember 2014 08:15
Hjartaaðgerð Tómasar á myndbandi: „Einstök upptaka“ Það þykir kraftaverki líkast að Sebastian Andrzej Golab hafi lifað af hnífsstungu á Hverfisgötu þann 23. nóvember síðastliðinn. Upptaka náðist frá aðgerðinni sjálfri kvöldið örlagaríka. 4. desember 2014 19:53
Krufning fer fram í dag vegna mannsláts við Hverfisgötu Í kjölfarið mun koma í ljós hvert framhaldið verður er varðar aðkomu lögreglu að málinu 20. janúar 2015 12:06