Þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga 16 ára stúlku Birgir Olgeirsson skrifar 22. apríl 2015 17:04 Dómur Héraðsdóms Suðurlands á Selfossi var staðfestur. Vísir/Pjetur
Hæstiréttur Íslands hefur staðfest þriggja ára fangelsisdóm yfir Ingólfi Þórði Möller sem var sakfelldur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir nauðgun á sextán ára gamalli stúlku árið 2012. Samkvæmt ákæru í málinu braut Ingólfur á stúlkunni aðfaranótt sunnudagsins 7. október í grasbala við skemmtistað á Selfossi. Ýtti Ingólfur stúlkunni niður í grasið og þröngvaði henni með ofbeldi til samræðis. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot Ingólfs úti á víðavangi beindist gegn sextán ára stúlku sem átti sér einskis ills von er hún fór í göngutúr með Ingólfi, sem var 20 árum eldri en stúlkan og hún treysti. Stúlkan sagðist hafa hitt Ingólf þegar hún og vinir hennar fóru út að reykja víð skemmtistaðinn á Selfossi. Hún spjallaði við hann og í kjölfarið kysstust þau. Hún sagði manninn hafa beðið sig um að koma með sér í smá göngutúr og hafi þau gert það. Hún kvaðst hafa sagt honum að hún væri ekki að fara að sofa hjá honum. Ingólfur ýtti henni þá niður i grasið og nauðgaði henni. Ingólfur neitaði sök í málinu og sagðist engin samskipti hafa átt við stúlkuna. Hann sagðist hafa verið inni á skemmtistaðnum allan tímann og ekkert farið út fyrr en hann hafi farið heim ásamt fylgdafólki sínu. Hann kannaðist ekki við að hafa hitt brotaþola en mögulega hefði hann hjálpað henni að leita að síma en hann gat ekki skýrt nánar frá þeim samskiptum. Samkvæmt símagögnum hringdi vitni í stúlkuna á um hálf þrjú þessa nótt og sagðist stúlkan þá vera með strák á bak við hús. Samkvæmt dómnum var óumdeilt að sími Ingólfs tengdist síma stúlkunnar um þrjú umrædda nótt og þóttu símagögnin styðja frásögn stúlkunnar um atvikin. Auk þriggja ára fangelsisdóms var Ingólfur dæmdur til að greiða stúlkunni eina milljón króna í bætur.
Tengdar fréttir Þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Þrjátíu og átta ára karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga sextán ára stúlku á grasbala við skemmtistað. 11. júní 2014 18:32 Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Sjá meira
Þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Þrjátíu og átta ára karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga sextán ára stúlku á grasbala við skemmtistað. 11. júní 2014 18:32