Gervihnattaútsending RÚV ekki fyrir alla Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 10. júní 2015 12:00 Útsendingar RÚV um gervihnöttinn Thor munu standa eitthvað fram á sumar en óvissa er með framhaldið. VÍSÍR/GVA
Sökum óvissu um framtíð útsendinga Ríkissjónvarpsins um gervihnöttinn Thor hefur RÚV ekki talið ráðlegt að kaupa ný kort sem setja þarf í sérstaka afruglara til að ná útsendingunum. Margrét Magnúsdóttir, skrifstofustjóri RÚV, segir einungis hægt að kaupa mikið magn korta í einu upp á milljónir króna. Þar af leiðandi stendur þessi lausn þeim sem ekki ná venjulegum útsendingum RÚV og hafa ekki aðgang að gervihnattaútsendingunni nú þegar ekki til boða. Upphaflega var markmið útsendinganna að ná til sjófarenda og fólks sem býr við erfið móttökuskilyrði en með nýju dreifikerfi RÚV er ekki sama þörf á þjónustunni og áður fyrir síðarnefnda hópinn. Enda nær nýja dreifikerfið til um 99,9 prósenta Íslendinga samkvæmt RÚV. Þó er enn þörf fyrir örfáa innan þess hóps, auk þess sem þörfin fyrir sjófarendur hefur ekki breyst. RÚV hefur frá árinu 2007 sent út á gervihnettinum á grundvelli samnings stjórnvalda við norska fjarskiptafyrirtækið Telenor. Sá samningur var til þriggja ára og var einungis heimilt að framlengja hann út árið 2014. Sá samningur er því útrunninn. Árlegur kostnaður við útsendingarnar yfir samningstímann hefur verið um það bil fjörutíu milljónir.Margrét MagnúsdóttirrightMargrét gerir ráð fyrir því að bjóða þurfi þjónustuna út að nýju. Það er að segja ef ákvörðun verður tekin um að halda útsendingum áfram. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í viðtali við RÚV í júní 2014 að fjármagn þyrfti að tryggja fyrir varanlega lausn, enda litu stjórnvöld á það sem hluta af grunnþjónustu RÚV að koma efni sínu til sjófarenda og fólks sem býr þar sem móttökuskilyrði eru erfið. Fjármálaráðherra lagði því til í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2014 að fjárframlag ríkissjóðs til þessa máls yrði hækkað um tíu milljónir króna, eða upp í fjörutíu milljónir samtals, til að halda útsendingum áfram, auk þess sem varanleg lausn yrði fundin. Þeirri tillögu hafnaði þingið og því var fjármagn til útsendingarinnar á þrotum og samningurinn rann út. „Þó hafa nokkur ráðuneyti veitt framlög til málsins á árinu og tryggt útsendingar eitthvað fram á sumarið á meðan endanleg ákvörðun liggur ekki fyrir. Okkar von er að góð lausn finnist að lokum,“ segir Margrét.
Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Sjá meira