Jón hleypir öllu í bál og brand Heimir Már Pétursson skrifar 10. júní 2015 18:45
Fjármálaráðherra mælti í dag fyrir frumvörpum á Alþingi sem fela í sér stærstu skrefin sem stigin hafa verið til afnáms gjaldeyrishafta. Hann gat þó ekki hafið umræðuna fyrr en umræðum lauk um óvænt útspil formanns atvinnuveganefndar í virkjanamálum. Almenn samstaða er um það á Alþingi að tvö frumvörp fjármálaráðherra um afnám gjaldeyrishafta fái friðsama og vandaða umræðu og hafði dagskrá þingsins í dag að mestu verið helguð fyrstu umræðu um þau. En í umræðum um störf þingsins þar á undan sakaði Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður atvinnuveganefndar Steingrím J. Sigfússon fyrrverandi formann Vinstri grænna um tvískinnung þegar kæmi að virkjunum í kjördæmi hans í tengslum við framkvæmdir á Bakka annars vegar og umdeildum virkjanakostum í breytingartillögu meirihluta atvinnuveganefndar hins vegar. Stærsti ásteytingarsteinninn á þessu þingi er deila stjórnar og stjórnarandstöðu um breytingatillögu meirihluta atvinnuveganefndar í virkjanamálum. Formaður nefndarinnar virtist opna á það í umræðum á þinginu í dag að fresta málinu til haustsins en gerði það með þeim hætti að fjaðrirnar á stjórnarandstöðunni ýfðust. „En þegar kemur að öðrum kjördæmum (en kjördæmi Steingríms) og öðrum málum þá fara menn að flækja sig í einhverjum forsendum og í einhverjum ferlum og þvæla málinu út og suður. Þannig að það ríkur úr hausnum á þeim sjálfum. Þau skilja ekki sjálf hvað þau eru að tala um. Menn geta auðvitað tekið málið til baka og þá þarf að flytja málið aftur í haust. Þá þarf ráðherra til að fylgja ferlinu eftir því sem skorað er hér á menn að fylgja ferlinu og koma fram með breytingatillögur. Um kannski fimm, sex kosti. Þá er búið að uppfylla þetta og þá getum við afgreitt þetta í október,“ sagði Jón. En hingað til hafa stjórnarflokkarnir ekki tekið annað í mál en tillagan verði afgreidd nú á vorþinginu eins og tveggja vikna þrotlausar umræður um málið sýna. Þingmenn gerðu margir harðorðar athugasemdir við ræðu Jóns sem var síðastur á mælendaskrá í umræðum um störf þingsins og því þurftu aðrir að svara honum undir liðnum um fundarstjórn forseta. „Auðvitað kippi ég mér ekki mikið við skítadreifarana frá háttvirtum þingmanni Jóni Gunnarssyni. Ég mun hafa tækifæri síðar til að jafna þá reikninga ef svo ber undir. En mér er meira umhugað um það að svona lagað sé ekki látið líðast hér í störfum þingsins. Að svona lágkúra og svona ódrengskapur; að vega að mönnum sem ekki geta svarað og hafa ekki ræðurétt í sömu umræðu sé látið viðgangast,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon. Birgitta Jónsdóttir kapteinn Pírata sagði Jóni svo kært að vera í sviðsljósinu og hafa valdið á Alþingi að hann hleypti öllu í uppnám. „Við erum á Alþingi háttvirts þingmanns Jóns Gunnarssonar en ekki á Alþingi Íslendinga. Og það er absúrd forseti hvað þessi maður ræður miklu hér inni,“ sagði Birgitta. Hvort þessi umræða verður til þess að samkomulag náist um þinglok skal ósagt látið, en ekkert slíkt samkomulag er í augnsýn enn sem komið er.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Sjá meira