Vart við geislavirkni á Íslandi í fyrsta sinn Samúel Karl Ólason skrifar 16. september 2015 18:08 Reykjanesvirkjun. Vísir/GVA
Vart hefur orðið við uppsöfnun náttúrulegra geislavirkra efna í fyrsta sinn hér á Íslandi. Slík uppsöfnun fannst í borholutoppum við Reykjanesvirkjun, en hún er staðbundin samkvæmt tilkynningu frá Geislavörnum ríkisins. Mælingar stofnunarinnar gefa til kynna aukna geislavirkni miðað við það sem algengast er á Íslandi. Engin hætta er þó á ferðum. Til að fullnægja ýtrustu öryggiskröfum hefur því verið beint til HS Orku að þeir einstaklingar sem vinni við hreinsun á þessum útfellingum beri viðeigandi hlífðarbúnar. „Uppsöfnunin verður vegna þess að fjölmörg efni, þar á meðal ákveðin geislavirk efni úr náttúrunni, falla út við borholutoppana. Þessi efni eru blý (Pb-210) bismút (Bi-210) og pólon (Po-210), en þau eru öll dótturefni úrans (U-238) sem finnst alls staðar í umhverfi okkar. Við ákveðnar aðstæður geta þau safnast upp í útfellingum eins og þekkt er t.d. við olíu- og gasvinnslu annars staðar í heiminum, en einnig við hagnýtingu jarðhita.“ Þar kemur fram að umrædd efni gefi frá sér beta- eða alfa geislun sem sé það skammdræg að fólk verði ekki fyrir geislun frá útfellingunum þó það standi mjög nálægt þeim.Lítið um umrædd efni á Íslandi Náttúruleg geislavirk efni eru í öllu umhverfi mannsins og í öllum manneskjum. Samkvæmt Geislavörnum ríkisins er þó mjög lítið af þessum efnum hér á Íslandi, miðað við í nágrannalöndum okkar. Það er vegna þess að ríkjandi berggrunnur hér er basalt en ekki granít. „Í gildi eru alþjóðleg viðmið fyrir hve miklu geislaálagi almenningur má verða fyrir árlega vegna starfsemi sem getur valdið geislun. Fyrir starfsmenn við slíka starfsemi gilda önnur og margfalt hærri mörk en fyrir almenning, sem þó eru það lág að tryggt á að vera að hugsanlegur skaði sé ekki meiri en í öðrum störfum sem flokkuð eru sem örugg.“ Geislavarnir hafa veitt HS Orku heimild til hreinsunar og geymslu útfellinga með aukna náttúrulega geislavirkni frá Reykjanesvirkjun. Starfsmenn Geislavarna hafa verið viðstaddir hreinsun útfellinga að undanförnu og hafa gert ýmsar mælingar á vettvangi. Stofnunin metur það svo að þessar útfellingar sem sé eingöngu að finna í borholutoppum við Reykjanesvirkjun, vegna sérstakra jarðfræðilegar aðstæður. Mælingar hafa verið framkvæmdar við Svartsengi og Nesjavelli og þar hafa ekki fundist vísbendingar um aukna náttúrulega geislavirkni. Mælingar verða gerðar við aðrar jarðvarmavirkjanir á næsta ári.
Mest lesið „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Fleiri fréttir Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Sjá meira