Borg og sveitarfélög skora á ríkisstjórnina Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 11. október 2015 20:33
Bæjarráð Garðabæjar og borgarráð Reykjavíkurborgar skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir nauðsynlegum breytingum á tekjustofnum sveitarfélaga. Bæjarstjóri í Mosfellsbæ hyggst leggja fram sambærilega áskorun á fundi bæjarráðs í vikunni. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa að undanförnu átt fundi sín á milli þar sem rætt hefur verið alvarlega stöðu í fjármálum sveitarfélaga. Í stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að „sveitarfélögum skulu tryggðir nauðsynlegir tekjustofnar í samræmi við þau verkefni sem þeim eru falin í stjórnarskrá og lögum. Þeir skulu vera nægjanlega fjölþættir og sveigjanlegir í eðli sínu svo þeir geti staðið undir þeirri fjölbreyttu þjónustu sem íbúar þeirra kalla eftir.“ Bæjarstjórn Garðabær reið á vaðið í byrjun mánaðar með áskorun sinni á ríkisstjórn en þar segir að við núverandi aðstæður sé vart hægt að halda því fram að tekjustofnar standi undir þessum markmiðum. „Við erum að óska eftir því að tekjustofnar sveitarfélaganna verði fjölþættari og breiðari. Það er ástæða fyrir því. Nú eru nýgerðir kjarasamningar kennara og fleiri aðila og þetta kostar gríðarlega mikla fjármun,“ segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ. „Þannig að við erum að sjá það að sveitarfélögin hafa einfaldlega ekki efni á öðru en veita þessa grunnþjónustu og lítið annað, menningu og annað. Við viljum vekja athygli ríkisstjórnarinnar á því að það er ekki rétt gefið og við viljum að ríkisstjórnin komi í samtal við sveitarfélögin um öðruvísi deilingu.“ Áskorunin fór til ríkisstjórnarinnar og allra þingmanna en viðbrögð fengist. Borgarráð Reykjavíkurborg samþykkti sambærilega áskorun í síðustu viku. Sveitarfélögin tvö kalla meðal annars eftir breytingum á ákvæðum um fjármagnstekjuskatt og að sveitarfélög fái hlutdeild í honum. „Við viljum auðvitað fá hlutdeild í þessu. Einfaldlega vegna þess að þetta ágæta fólk vill líka greiða til nærsamfélagsins.“ Áskorun Mosfellsbæjar verður tekin fyrir í vikunni. „Við erum öll sammála um það að það þarf að grípa til ráðstafan,“ segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ. „Við þurfum að fá skilning ríkisvaldsins á því að laga þessa hluti svo að hægt sé að halda þjónustu sveitarfélaganna á svipuðum nótum og verið hefur. Annars býður okkur eitthvað allt annað.“
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira